flugfréttir
Helmingur starfsmanna hjá Air Malta verður sagt upp
Flugfloti Air Malta
Flugfélagið Air Malta hefur tilkynnt um umfangsmikinn niðurskurð og stendur til að fækka starfsmönnum um allt að helming í þeim tilgangi að ná fram hagræðingu á ný í rekstri.
Air Malta hefur 890 starfsmenn og verður um 470 manns boðið tækifæri á því að þiggja aðrar
stöður á opinberum vinnustöðum innan ríkisins en 420 manns munu halda starfi sínu hjá
flugfélaginu.
Upphaflega stóð ekki til að grípa til uppsagna og þess í stað hagræða einungis flugáætluninni í janúar og febrúar með því að draga úr tíðni til þeirra 16 áfangastaða sem félagið flýgur
til yfir vetrartímann en verulega hefur dregið úr eftirspurn eftir flugsætum og þá
hafa hertar ferðatakmarkanir vegna heimsfaraldursins einnig sett strik sitt í reikninginn.
Á hinn bóginn þá ætlar Air Malta ekki að fella niður neinar flugleiðir í vetur líkt og mörg
önnur flugfélög hafa gert sem fljúga sömu leiðir. David G. Curmi, framkvæmdarstjóri Air Malta, segir
að félagið ætli að hagræða frekar flugleiðum og komast því hjá því að fljúga tómum flugvélum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.