flugfréttir

Isavia undirritar Toulouse-yfirlýsinguna

14. febrúar 2022

|

Frétt skrifuð kl. 07:15

Yfirlýsingin er unnin á vettvangi Evrópusambandsins með aðkomu hagaðila á borð við Evrópudeild Alþjóðasamtaka flugvalla (ACI Europe – Airports Council International)

Isavia hefur undirritað Toulouse yfirlýsinguna um sjálfbærni og kolefnisleysi í flugtengdum rekstri en nærri 100 flugvallarrekendur, samtök þeirra og fulltrúar um 200 flugvalla undirrituðu yfirlýsinguna.

Yfirlýsingin er unnin á vettvangi Evrópusambandsins með aðkomu hagaðila á borð við Evrópudeild Alþjóðasamtaka flugvalla (ACI Europe – Airports Council International). Hún markar kaflaskil á þeirri vegferð flugvallarekenda í álfunni um að stefna að kolefnishlutleysi í flugvallarekstri fyrir árið 2050.

Með yfirlýsingunni taka ríkisstjórnir Evrópusambandsríkja, framkvæmdastjórn ESB og hagaðilar í fyrsta sinn höndum saman um að ná fram kolefnishlutleysi í flugiðnaði. Yfirlýsingin er sögð ryðja brautina fyrir samninga Evrópusambandsins um kolefnishlutleysi í flugiðnaði og heimsmarkmið þess í alþjóðaflugi á vettvangi Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO).

„Þessi yfirlýsing er mikilvægt næsta skref í átt að kolefnislausri framtíð í flugvallarekstri,“ segir Hrönn Ingólfsdóttir, forstöðumaður stefnumótunar og sjálfbærni hjá Isavia. „Við höfum þó sett okkur það markmið að starfsemi Keflavíkurflugvallar verði orðin kolefnislaus árið 2030. Þar með erum við í hópi með þeim flugvöllum innan ACI Europe sem hafa sett sér það yfirlýsta markmið að ná þangað tuttugu árum á undan áætlun alþjóðasamtakanna.”

„Stjórn Isavia samþykkti í fyrra sjálfbærnistefnu fyrir félagið sem taki á loftslagsmálum, auðlindanýtingu, lífsgæðum og virðissköpun,” segir Hrönn. „Sett hafa verið skýr markmið, ákveðnir mælikvarðar og lögð fram fimm ára aðgerðaráætlun. Haldið er ítarlegt og skýrt stefnubókhald um aðgerðirnar til að tryggja framkvæmd þeirra. Þá fengum við hjá Isavia ISO 14001 umhverfisvottun í lok síðasta árs. Sú vottun styður við sjálbærnistefnuna og aðgerðaráætlunina og sýnir að þær eru ekki bara orðin tóm.”

„Hver og einn flugvöllur sem skrifar undir þessa yfirlýsingu setur mark sitt á framtíð okkar sem atvinnugreinar, sem hagkerfis og sem samfélags,“ segir Olivier Jankovec, framkvæmdastjóri ACI Europe. „Þeir staðfesta metnað sinn, framtíðarsýn og yfirburði sem sjálfbærum aðgerðum.“







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga