flugfréttir
Taka stærri A330 breiðþotur og bæta við A321LR
Airbus A330neo þota frá Kuwait Airways
Kuwait Airways hefur ákveðið að breyta pöntun sinni hjá Airbus sem félagið átti í Airbus A330neo þoturnar og ákveðið að taka nokkrar þotur af stærri gerðinni.
Kuwait Airways hafði lagt inn pöntun í átta þotur af minni gerðinni, Airbus A330-800, á sínum tíma og hefur félagið í dag fengið tvær afhentar.
Í stað þess að taka við sex A330-800 þotum ætlar félagið að fá aðeins fjórar til viðbótar en bætir í staðinn við pöntun í sjö A330-900 þotur.
Þá hafði Kuwait Airways pantað fimm Airbus A350 breiðþotur af gerðinni A350-900 en ætlar að fækka þeim niður í tvær. Í staðinn ætlar félagið að taka níu Airbus A321neo þotur og þar af verða þrjár af langdrægari gerðinni, Airbus A321LR.
Þessi nýja pöntun og breyting er ein sú stærsta sem Kuwait Airways hefur gert við Airbus.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.