flugfréttir

Stærsta flugvél heims eyðilögð í innrás Rússa á Antonov-flugvöll

- Antonov An-225 „Mriya“ eyðilögð í bruna í flugskýli sínu í Úkraínu

27. febrúar 2022

|

Frétt skrifuð kl. 18:38

Antonov An-225 er stærsta flugvél heims

Rússneski herinn er sagður hafa eyðilagt stærstu fraktflugvél heims, hina úkraínsku Antonov An-225 Mriya, í innrásinni í Úkraínu.

Dmytro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu, staðfestir þetta og kemur fram að herlið Rússa hafi eyðilagt flugvélina í innrás á Antonov-flugvellinum í bænum Hostomel í Úkraínu.

Antonov-flugvöllurinn er í eigu Antonov flugvélaframleiðandans sem er dótturfyrirtæki Antonov Airlines sem starfrækti An-225 flugvélina sem hefur verið notuð til þess að taka að sér sérhæft fraktflugsverkefni er kemur að flytja stóra frakt á milli heimsálfa.

„Þetta var stærsta flugvél í heimi. Þótt að þeir hafi eyðilagt „Mriya“ þá munu þeir aldrei ná að eyðileggja draum okkar um að vera öflugt, sterkt og frjálst Evrópuland. Við munum sigra“, skrifar utanríkisráðherrann á Twitter.

Antonov An-225 var sex hreyfla risaflugvél sem var smíðuð á tímum kalda stríðsins af úkraínska flugvélaframleiðandanum Antonov Design Bureau en aðeins eitt eintak er til af þessari vél sem hefur meðal annars haft nokkrum sinnum viðkomu á Keflavíkurflugvallar í gegnum tíðina til þess að taka eldsneyti á leið sinni yfir hafið.

Á Twitter-reikningnum OSINT_Canada hafa verið birtar gervitunglamyndir sem sýna flugskýli í ljósum logum sem borið er sama við mynd af Google og kemur fram að hægt sé að staðfesta að um sama flugskýli sé að ræða sem notað var til þess að geyma Antonov An-225 flugvélina og þar að auki er beint á að á myndinni sjáist í stélið á flugvélinni.

Gervitunglamynd sem birt hefur verið sem sýnir Antonov An-225 „Mriya“ flugvélina inni í flugskýli eftir árás Rússa









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga