flugfréttir
Leiðarkerfi Finnair í Asíu í uppnámi
- Meta ástandið ef innrásin í Úkraínu dregst á langinn
Airbus A350 þota Finnair á flugvellinum í Hong Kong
Finnska flugfélagið Finnair vinnur nú að því að endurmeta leiðarkerfi sitt þar sem félagið hefur neyðst til þess að fella niður áætlunarflug til allra áfangastaða sinna í Asíu þar sem að lofthelginni yfir Rússlandi hefur verið lokað fyrir evrópskum flugfélögum.
Stór hluti af umsvifum Finnair er tilkomin vegna áætlunarflugs félagsins til áfangastaða
í Asíu sem er einn stærsti markaður flugfélagsins en talið er að lokun lofthelginnar
yfir Rússlandi eigi eftir að hafa gríðarlega miklar fjárhagslegar afleiðingar fyrir Finnair
ef lokunin dregst á langinn.
„Við erum að hrinda úr vör viðbragsáætlun þar sem að þetta mun hafa mikil
áhrif á Finnair. Að sneiða hjá lofthelginni til þess að komast til Asíu myndi lengja
flugtímann gríðarlega og er sú leið langt frá því að vera hagkvæm bæði
fyrir farþegaflug og fraktflug“, segir Topi Manner, framkvæmdarstjóri Finnair.
Finnair tekur fram að fjárhagsstaða félagsins sé ennþá mjög sterk og sé
stjórn félagsins að skoða nokkra möguleika í stöðunni. Þá tekur Manner fram að félagið eigi í viðræðum við ríkisstjórn
Finnlands um næstu skref ef ástandið mun fara áfram.
Þá kemur fram að bókunum fari fjölgandi á fargjöldum til áfangastaða í
Norður-Ameríku og í Evrópu sem er afleiðing þess að takmörkunum vegna
heimsfaraldursins hefur verið aflétt víða.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.