flugfréttir

Ný sólgleraugu veita vörn við lasergeislaárásum

1. mars 2022

|

Frétt skrifuð kl. 14:10

Sólgleraugun voru þróuð í samstarfi við rannsóknarstofu bandaríska flughersins (AFRL) og nefnast gleraugun „Lazrbloc CALI“

Til þess að bregðast við þeirri gríðarlegri aukningu sem hefur átt sér stað á tilvikum þar sem lasergeislum hefur verið beint í átt að flugvélum hefur gleraugnaframleiðandinn Revision komið með á markað sólgleraugu sem veita flugmönnum vörn við lasergeislaárásum.

Sólgleraugun voru þróuð í samstarfi við rannsóknarstofu bandaríska flughersins (AFRL) og nefnast gleraugun „Lazrbloc CALI“ en fræðast má nánar um sólgleraugun á vefsíðu Revision.

Á hverju ári fjölgar lasergeislaárásum samkvæmt tölum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) en Amy Coyne, framkvæmdarstjóri Revision, segir að fyrirtækið hafi verið í samstarfi við bandaríska flugherinn um þróun á sólgleraugum sem veita vörn gegn lasergeislum.

Samkvæmt tölum FAA var tilkynnt um 9.723 tilvik árið 2021 þar sem lasergeislum var beint að flugvélum vestanhafs sem er 40% aukning frá árinu 2020 og fer tilvikum fjölgandi þrátt fyrir að sektin við slíku athæfi nemi allt að 1.4 milljón króna.

Lasergeisla beint að þyrlu að næturlagi

Fram kemur að mögulega séu mörg tilvik sem ekki hafa verið tilkynnt og er ástæðan rakin til þess að flugmenn vilja ekki eiga á hættu á að missa fluglæknisvottorðið ef fluglæknir metur sem svo að þeir hafi hlotið augnskaða.

CALI-sólgleraugun (Commercial Aviation Low Intensity) koma með vörn sem ver flugmenn fyrir mismunandi tegundum af lasergeislum og trufla ekki sjónina þegar horft er á mæla og stjórntækin í stjórnklefanum auk þess sem hægt er að nota gleraugun í myrki án þess að skerða ásýnd en flestar laserárasir eiga sér stað að næturlagi.

Gleraugun koma í tveimur útgáfum, einni sem er ætluð flugmönnum sem fljúga flugvélum og önnur útgáfan sem er ætluð þyrluflugmönnum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga