flugfréttir

Íhuga að taka við þotum sem áttu að afhendast til Rússlands

3. mars 2022

|

Frétt skrifuð kl. 15:58

Carsten Spohr, framkvæmdarstjóri Lufthansa Group

Carsten Spohr, framkvæmdarstjóri Lufthansa, segir að flugfélagið þýska sé mögulega að spá í að festa kaup á einhverjum af þeim breiðþotum sem rússnesk flugfélög höfðu pantað hjá Boeing og Airbus en geta ekki tekið við vegna viðskiptahafta á Rússland vegna árásanna á Úkraínu.

Carsten Spohr sagði í dag, er afkoma Lufthansa Group á síðasta fjármálaári var kynnt, að flugfélagið hefði ekki áform um að breyta flotastefnu félagsins er kemur að flugvélategundum en til stæði að skoða þann möguleika hinsvegar að taka við þeim breiðþotum sem flugvélaframleiðendur ná ekki að afhenda til rússneskra flugfélaga.

„Vegna þeirra aðstæðna sem hafa komið upp þá ríkir óvissa um hvaða flugvélar hægt verður að afhenda til Rússlands. Við verðum að bíða og sjá hvaða flugfélög eiga eftir að ná að taka við þessum flugvélum og það verður einhver breyting núna á markaðnum“, segir Spohr.

Spohr tekur fram að þær þotur sem koma sterklega til greina eru þotur af gerðinni Airbus A350, Boeing 787 og jafnvel einhverjar minni þotur úr Airbus A320neo fjölskyldunni.

Eina rússneska flugfélagið sem hefur pantað Airbus A350 þoturnar er Aeroflot sem á enn eftir að fá fjórtán þotur afhentar.

Lufthansa hefur fengið átján Airbus A350-900 þotur og á enn eftir að taka við 28 þotum til viðbótar en þá á Lufthansa einnig eftir að fá 25 Dreamliner-þotur af gerðinni Boeing 787-9.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga