flugfréttir
Avianca pantar 88 A320neo þotur frá Airbus
- Ætla að tvöfalda umsvifin á næstu þremur árum
Airbus A320 þota frá Avianca á flugvellinum í borginni Medellín í Kólumbíu
Kólumbíska flugfélagið Avianca hefur lagt inn pöntun til Airbus í 88 þotur til viðbótar af gerðinni A320neo en þoturnar verða afhentar til flugfélagsins frá árinu 2025 til ársins 2031.
Avianca hefur í dag fengið ellefu Airbus A320neo þotur afhentar og á félagið eftir að fá 77
til viðbótar. Þá segir í tilkynningu að flugfélagið hafi einnig gert kauprétt á 50 þotum til viðbótar.
Flugfloti Avianca telur 110 flugvélar í dag en flotinn samanstendur af Airbus-þotum af gerðinni
A319, A320, A320neo og Airbus A330 og þá hefur félagið 14 Dreamliner-þotur af gerðinni Boeing 787-8 og Boeing 787-9.
Avianca sótti um Chapter 11 gjaldþrotavernd í fyrra vegna þeirra áhrifa sem kórónaveirufaraldurinn
hafði á félagið en Avianca var fyrsta af þeim þremur stóru flugfélögum í Suður-Ameríku
sem kom sér út úr gjaldþrotaverndinni með nýrri rekstaráætlun og hafði félagið í desember
náð að koma með nýtt rekstarfé inn í félagið upp á 228 milljarða króna.
Avianca segir að gert er ráð fyrir að leiðarkerfi félagsins eigi eftir að tvöfaldast í umfangi á næstu þremur árum og er talið að flugleiðir félagsins verða þá 200 talsins en félagið flýgur í dag 120 flugleiðir á milli 65 áfangastaða.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.