flugfréttir

Færri pantanir í breiðþotur en fleiri í minni þotur

9. mars 2022

|

Frétt skrifuð kl. 16:39

Frá verksmiðjum Airbus í Toulouse

Airbus hefur fengið færri pantanir í nýjar breiðþotur frá áramótum og héldu þær áfram að dvína í febrúar en á móti kemur þá varð fjölgun á pöntunum í minni þotur og sérstaklega í Airbus A220 þotuna.

Airbus hefur afskrifað pantanir í tuttugu breiðþotur af gerðinni Airbus A330-900 sem tilheyrðu óþekktum viðskiptavini og þá hefur Singapore Airlines hætt við tvær af þeim A350-900 þotum sem félagið hafði pantað og þá hefur Kuwait Airways hætt við þrjár Airbus A350-900 þotur.

Þrátt fyrir þetta þá hefur Kuwait Airways lagt inn nýja pöntun í þrjár Airbus A330neo breiðþotur af gerðinni A330-900 og þá pantaði Singapore Airlines nýlega sjö Airbus A350 fraktþotur.

Í dag er heildarfjöldi þeirra Airbus A350 þotna, sem pantaðar hafa verið, komin í 917 þotur en pantanir í Airbus A330neo fækkar um sautján niður í 336 þotur.

Annað er upp á teningnum er kemur að minni þotum en á dögunum pantaði jetBlue Airways 50 þotur af gerðinni Airbus A220 og þá hefur flugfélagið Jazeera Airways í Kúvæt pantað 28 þotur úr Airbus A320neo fjölskyldunni og ónefndur viðskiptavinur hefur pantað tuttugu Airbus A321neo þotur.

Þá hafa komið inn á borð til Airbus pantanir í samtals fimm A320neo þotur frá Aer Lingus og Kuwait Airways.

Frá áramótum hefur Airbus fengið pantanir í 149 þotur í það heila en á móti kemur að hætt hefur verið við 50 þotur af gerðinni A321neo vegna deilna við flugfélagið Qatar Airways.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga