flugfréttir

Hætta flugi til 29 borga vegna skorts á flugmönnum

11. mars 2022

|

Frétt skrifuð kl. 15:42

Farþegaþota frá United Express

Bandaríska flugfélagið SkyWest Airlines ætlar að fella niður flug til 29 borga í Bandaríkjunum á næstu mánuðum þar sem að skortur er á flugmönnum til að fljúga flugvélum félagsins.

SkyWest Airlines, sem hefur höfuðstöðvar sínar í Utah, sendi í gær yfirlýsingu til samgönguráðuneytis Bandaríkjanna þar sem fram kemur að félagið stefnir á að leggja niður áætlunarflug til 29 borga þann 10. júní næstkomandi og jafnvel fyrr.

Allir áfangastaðarnir eru á lista yfir verkefni á vegum stjórnvalda sem lútar að flugleiðum sem nauðsynlegt er að halda uppi til þess að þjónustu tiltekin svæði með samgöngum og flutningu á varningi.

Verkefnið nefnist „Essential Air Service“ (EAS) og var því hrint úr vör á áttunda áratug síðustu aldar og hefur það tryggt að yfir 200 samfélög víðsvegar um Bandaríkin njóti lágmarks þjónustu er kemur að flugsamgöngum.

„Þótt að Skywest Airlines væri til í að halda áfram að bjóða upp á flug til þessara svæða þá hefur flugmannaskorturinn í Bandaríkjunum verið mjög krefjandi fyrir flugiðnaðinn og kemur það í veg fyrir að við getum haldið áfram“, segir í yfirlýsingu frá flugfélaginu til samgönguráðuneytisins.

Í yfirlýsingu segir flugfélagið einnig að SkyWest sé reiðubúið að finna lausn á þessu vandamáli og geti félagið brugðist við með sveigjanleika ef lausn finnst.

SkyWest annast áætlunarflug fyrir hönd nokkurra flugfélag í Bandaríkjunum og þar á meðal eru United Airlines, American Airlines, Alaska Airlines og Delta Air Lines en félagið hefur yfir 500 flugvélar í flotanum af gerðinni Embraer 175 og Bombardier CRJ200, CRJ700 og CRJ900.

Allar borgirnar sem SkyWest mun hætta að fljúga til eru í leiðarkerfi United Airlines en borgirnar eru:

Alamosa, CO
Pueblo, CO
Fort Dodge, IA
Mason City, IA
Sioux City, IA
Dodge City, KS
Hays, KS
Liberal, KS
Salina, KS
Paducah, KY
Decatur, IL
Houghton, MI
Muskegon, MI
Cape Girardeau, MO
Fort Leonard Wood, MO
Joplin, MO
Meridian, MS
Hattiesburg, MS
Devils Lake, ND
Jamestown, ND
Kearney, NE
North Platte, NE
Scottsbluff, NE
Johnstown, PA
Victoria, TX
Shenandoah, VA
Eau Claire, WI
Clarksburg, WV
Lewisburg, WV







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga