flugfréttir
Evrópskt öryggisátak í almannaflugi hefst eftir helgi
- „Verum tilbúin“ (Be Ready – Fly Safe Campaign) herferðin 14. til 25. mars
Dagskráin er að finna inn á vef EASA þar sem hægt er að skrá þátttöku, fá upplýsingar, áminningu fyrir erindi og taka þátt með beinum hætti.
Vikuna 14. til 25. mars stendur Flugöryggisstofnun Evrópusambandsins, EASA, fyrir öryggisátaki í almannaflugi.
Átakið nefnist „Verum tilbúin“ (Be Ready – Fly Safe Campaign) og segir í fréttatilkynningu frá Samgöngustofu að um samstarf sé að ræða við yfirvöld og hagaðila um alla Evrópu.
„Með hækkandi sól og betra veðri nálgumst við óðum flugsumarið og er
herferðinni ætlað að vekja athygli á mikilvægi viðhalds, undirbúnings, þjálfunar og fræðslu og draga þannig úr óhöppum og slysum í almannaflugi“, segir í tilkynningu frá Samgöngustofu.
Meðal annars verður sýnd röð erinda í beinu streymi á Youtube dagana 14.-25. mars nk. og eru viðfangsefnin á margan hátt í takt við „The Dirty Dozen“ veggspjöldin/dagatalið þar sem farið er yfir tólf algengustu mannlegu þættina sem leitt geta til slysa eða atvika í flugtengdri starfsemi og annað leiðbeiningarefni í almannaflugi sem er á vef Samgöngustofu og fjallar um öryggi í almannaflugi, flugmennsku – sjálfsmat, sjónflugssamning, fyrirflugsskoðanir og fleira.
Dagskráin er á vef EASA þar sem hægt er að skrá þátttöku, fá upplýsingar, áminningu fyrir erindi og taka þátt með beinum hætti.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.