flugfréttir

Delta og Air-France hafa áhuga á að kaupa ITA Airways

14. mars 2022

|

Frétt skrifuð kl. 07:57

Airbus A320 þota frá ITA Airways í lendingu á Heathrow-flugvellinum í London fyrr í þessum mánuði

Að minnsta kosti þrjú stór flugfélög hafa sýnt nýja ítalska flugfélaginu ITA Airways, arftaka Alitalia, mikinn áhuga að undanförnu og lýst yfir möguleika á að kaupa stóran hlut í félaginu.

Meðal áhugasamra flugfélaga eru Air France-KLM, Delta Air Lines og Lufthansa sem lýsti því yfir fyrst í janúar að félagið hefði áhuga á að taka yfir rekstur flugfélagsins ítalska með því að kaupa allan hlut í félaginu og gera það mögulega að einum af dótturfélögum þess.

Síðan þá hefur komið í ljós að Delta Air Lines hafi einnig áhuga á að kaupa ITA Airways auk Air France-KLM og hafa bæði félögin sent inn yfirlýsingu um áhuga fyrir kaupum til fjármálaráðuneytis Ítalíu.

Þá hefur verið greint frá því að fjórða fyrirtækið hafi einnig sent inn viljayfirlýsingu fyrir kaupum í ITA Airways og sé um að ræða bandarískt fyrirtæki sem á nokkur lágfargjaldaflugfélög og er mögulega talið að þar sé á ferðinni fyrirtækið Indigo Partners sem á nú þegar stóran hlut í ungverska lágfargjaldafélaginu Wizz Air.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga