flugfréttir

A340-600 breiðþotur Lufthansa í loftið á ný eftir 2 ára hlé

- Sú fyrsta flaug sitt fyrsta flug sl. föstudag frá Frankfurt til Washington

14. mars 2022

|

Frétt skrifuð kl. 08:44

Airbus A340-600 breiðþota frá Lufthansa

Lufthansa hefur dustað rykið af fyrstu Airbus A340-600 breiðþotunni sem hefur verið í langtímageymslu sl. 2 ár vegna heimsfaraldursins en er komin aftur í flota félagsins.

Fyrsta A340-600 breiðþotan kom til baka til Þýskalands á dögunum í flota Lufthansa og er von á fjórum þotum á næstunni sem allar fara aftur í reglubundið áætlunarflug.

Fyrsta flug Lufthansa með A340-600 í næstum því tvö ár var flogið sl. föstudag frá Frankfurt til Washington í Bandaríkjunum en þotan ber skráninguna D-AIHT og var hún smíðuð og afhent til Lufthansa árið 2008.

Þar á undan var seinasta flug þotunnar í áætlunarflugi flogið þann 22. mars árið 2020 frá Höfðaborg í Suður-Afríku til Munchen og vantar því aðeins 11 daga upp á að þotan hafi verið í geymslu í 2 ár.

D-AIHT var í Munchen til 19. maí 2020 en eftir það var henni flogið til Teruel-flugvallarins á Spáni þar sem hún var færð í langtímageymslu þar til 29. nóvember í fyrra en þá var hún ferjuð til Luqa á Möltu þar sem hún gekkst undir viðhaldsskoðun á vegum Lufthansa Technik.

Því næst var hún ferjuð til Frankfurt og hefur henni ekki verið flogið síðan fyrr en sl. miðvikudag að þotan fór í tveggja tíma tilraunaflug og undirbúning fyrir fyrsta áætlunarflugið tveimur dögum síðar.

Ljósmynd af D-AIHT í aðflugi að Dulles-flugvellinum í Washington sl. föstudag:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga