flugfréttir

Norse frestar fyrsta fluginu fram til júní

16. mars 2022

|

Frétt skrifuð kl. 14:27

Boeing 787-9 Dreamliner-þota frá Norse Atlantic Airways

Nýja norska flugfélagið, Norse Atlantic Airways, hefur ákveðið að bíða með að hefja starfsemi sína vegna ástandsins í Úkraínu og hefur félagið frestað opnun á farmiðasölu fram til apríl.

Til stóð að hefja sölu á farmiðum í þessum mánuði og var stefnt á að fljúga fyrstu áætlunarflugin í vor en vegna mikillar hækkunnar á verði á þotueldsneyti og óvissu með flugiðnaðinn vegna áhrifa af ástandinu í Úkraínu hefur Norse ákveðið að fresta sölu á farmiðum fram í næsta mánuð og hefja áætlunarflug í júní þess í stað.

„Við erum í þeirri undarlegri stöðu að við höfum enn ekki byrjað að fljúga sem gefur okkur tækifæri á að koma inn á markaðinn með mikilli varúð sem verður í samræmi við eftirspurn og ætlum við að aðlaga okkur eftir því“, segir Bjorn Tore Larsen, framkvæmdarstjóri félagsins.

Norse Atlantic Airways stefnir á að hefja flug á milli Noregs og áfangastaða í Bandaríkjunum en fljótlega í kjölfarið hefjast flug til Bandaríkjanna frá London og París.

Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að Norse Atlantic Airways hefur tryggt sér pláss á Gatwick-flugvellinum í London og stefnir félagið á að byrja með fimmtán Dreamliner-þotur en félagið fékk fyrstu Boeing 787 þotuna afhenta í desember og hefur félagið fengið níu afhentar og verða hinar sex afhentar á næstu mánuðum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga