flugfréttir
Flybe aftur í loftið í apríl

Flybe mun hefja áætlunarflug að nýju þann 13. apríl næstkomandi
Breska lágfargjaldaflugfélagið Flybe mun hefja áætlunarflug að nýju þann 13. aprík næstkomandi en félagið varð eitt fyrsta flugfélagið í Evrópu til þess að hætta starfsemi sinni eftir að kórónuveirufaraldurinn braust út árið 2020.
Fram kemur að næstum helmingur af leiðarkerfi félagsins muni tengjast við Belfast
en félagið stefnir á að einblína á öflugar tengingar á milli Belfast City flugvallarins
og Birmingham auk þess sem stór hluti leiðarkerfisins mun tengjast við Glasgow.
Nýja flugfélagið byggir á stórum hluta á eignum hins gamla félags en nýir eigendur koma
hinsvegar að rekstrinum og verður flugflotinn mun minni til að byrja með.
Frá og með 13. aprí verður til að mynda flogið fjórum sinnum á dag á milli Belfast og Birmingham
og það sama má segja á milli Belfast og Glasgow.
Tveimur vikum síðar, eða þann 28. apríl næstkomandi, verður fyrsta millilandaflugið flogið sem verður
áætlunarflug á milli Birmingham og Schiphol-flugvallarins í Amsterdam en einnig verður flogið
til Amsterdam frá East Midlands.
Þá verður einnig flogið frá London Heathrow til Belfast og frá Heathrow til Bradford. Þessar
flugleiðir eru meðal þeirra 23 sem félagið áætlar að fljúga í sumar en tólf af þeim munu
tengjast við Belfast.
„Ég held að nýju flugleiðirnar okkar eigi eftir að koma öllum til góða fyrir þá sem vilja
kjósa lág flugfargjöld. Þá mun leiðarkerfið bjóða upp á öflugar tengingar innan Bretlands
og einnig á milli Bretlands og áfangastaða í Evrópu“, segir Dave Pflieger, framkvæmdarstjóri
Flybe.


14. júní 2022
|
Boeing fékk pantanir í 23 nýjar flugvélar í maí en flestar pantanirnar voru gerðar í þotur af gerðinni Boeing 787 og Boeing 777X.

1. apríl 2022
|
Samningaviðræður á milli SAS (Scandinavian Airlines) og sænskra flugmanna fóru út um þúfur nánast í byrjun fundar og gengu forsvarsmenn sænska verkalýðsfélagsins Svensk Pilotforenging út úr fundarhe

5. apríl 2022
|
Kínverska flugfélagið Hainan Airlines ætlar að selja tvær Airbus A350-900 breiðþotur en báðar þoturnar hafa verið mjög lítið notaðar og þeim aðeins flogið átta sinnum í áætlunarflugi frá því þær voru

28. júní 2022
|
JetBlue Airways hefur komið með enn annað tilboðið í Spirit Airlines og kemur tilboðið á síðustu stundu áður en hluthafar Spirit Airlines kjósa um fyrirhugaðan samruna félagsins við Frontier Airlines

22. júní 2022
|
Ráðið hefur verið í stöðu skólastjóra og stöðu yfirkennara bóklegrar kennslu hjá Flugakademíu Íslands. Óskar Pétur Sævarsson var ráðinn skólastjóri og Davíð Brár Unnarson yfirkennari bóklegrar kennslu

21. júní 2022
|
Breska lágfargjaldafélagið easyJet segir að til standi að leggja inn pöntun til Airbus í 56 þotur af gerðinni Airbus A320neo og þá sé einnig áætlað að breyta pöntunum í átján A320neo þotur yfir í A3

20. júní 2022
|
Alþjóðasamtök flugfélaganna (IATA) hafa gefið út endurgerða fjárhagsspá fyrir flugfélögin þar sem talið er að afkoma flugfélaganna verði betri eftir heimsfaraldurinn en gert var ráð fyrir í upphafi

16. júní 2022
|
Suður-kóreska flugfélagið Asiana Airlines hefur ákveðið að dusta rykið af risaþotunum Airbus A380 þar sem að eftirspurn eftir flugi hefur tekið við sér að nýju eftir heimsfaraldurinn.

14. júní 2022
|
Farþegaþota af gerðinni Airbus A320 frá easyJet lýsti yfir neyðarástandi sl. sunnudag (þann 12. júní) eftir að annar flugmaður vélarinnar brá sér á salernið og kom ekki til baka í stjórnklefann fyrir

14. júní 2022
|
Ungvesrka lágfargjaldafélagið Wizz Air hefur þurft að svara fyrir ummæli framkvæmdarstjóra flugfélagsins og segir félagið í yfirlýsingu sinni að það sé langt frá því að Wizz Air setji flugöryggi í an

10. júní 2022
|
Lendingarkeppni fór fram á flugvellinum á Tungubökkum í Mosfellsbæ í gær en keppnin hófst klukkan 19:30 og var hluti af hinu vikulega fimmtudagskaffi sem fram fer á Tungubökkum á sumrin þar sem flugm