flugfréttir

Flybe aftur í loftið í apríl

23. mars 2022

|

Frétt skrifuð kl. 07:28

Flybe mun hefja áætlunarflug að nýju þann 13. apríl næstkomandi

Breska lágfargjaldaflugfélagið Flybe mun hefja áætlunarflug að nýju þann 13. aprík næstkomandi en félagið varð eitt fyrsta flugfélagið í Evrópu til þess að hætta starfsemi sinni eftir að kórónuveirufaraldurinn braust út árið 2020.

Fram kemur að næstum helmingur af leiðarkerfi félagsins muni tengjast við Belfast en félagið stefnir á að einblína á öflugar tengingar á milli Belfast City flugvallarins og Birmingham auk þess sem stór hluti leiðarkerfisins mun tengjast við Glasgow.

Nýja flugfélagið byggir á stórum hluta á eignum hins gamla félags en nýir eigendur koma hinsvegar að rekstrinum og verður flugflotinn mun minni til að byrja með.

Frá og með 13. aprí verður til að mynda flogið fjórum sinnum á dag á milli Belfast og Birmingham og það sama má segja á milli Belfast og Glasgow.

Tveimur vikum síðar, eða þann 28. apríl næstkomandi, verður fyrsta millilandaflugið flogið sem verður áætlunarflug á milli Birmingham og Schiphol-flugvallarins í Amsterdam en einnig verður flogið til Amsterdam frá East Midlands.

Þá verður einnig flogið frá London Heathrow til Belfast og frá Heathrow til Bradford. Þessar flugleiðir eru meðal þeirra 23 sem félagið áætlar að fljúga í sumar en tólf af þeim munu tengjast við Belfast.

„Ég held að nýju flugleiðirnar okkar eigi eftir að koma öllum til góða fyrir þá sem vilja kjósa lág flugfargjöld. Þá mun leiðarkerfið bjóða upp á öflugar tengingar innan Bretlands og einnig á milli Bretlands og áfangastaða í Evrópu“, segir Dave Pflieger, framkvæmdarstjóri Flybe.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga