flugfréttir

Risaþotan kemur sér vel vegna skorts á plássum á flugvöllum

- Gríðarleg aukning í eftirspurn eftir flugsætum hjá Emirates

29. mars 2022

|

Frétt skrifuð kl. 15:45

Airbus A380 risaþotur Emirates

Tim Clark, forstjóri Emirates, segir að skorur á afgreiðsluplássum á flugvöllum og gríðarleg aukning í eftirspurn eftir flugsætum réttlæti hiklaust endurkomu risaþotnanna Airbus A380 hjá flugfélaginu.

Þetta sagði Clark í dag á ráðstefnunni World Government Summit sem fram fer í Dubai og tók hann fram að mikið vandamál sé að fá afgreiðslupláss á flugvöllum á borð við Heathrow-flugvöllinn í London og í Hong Kong, Sao Paulo og í Sydney.

Clark segir að mjög ólíklegt sé að hægt verði að finna lausn á skorti á plássum á þessum flugvöllum í náinni framtíð og séu þotur á borð við Airbus A380 eina lausnin í stöðunni eins og er.

„Á meðan að flugvellir eru ekki að fjárfesta í þeim flugvöllum sem þurfa verulega á stækkun að halda með fleiri plássum þá mun vandamálið með plássin verða viðvarandi næstu 5 til 10 árin“, segir Clark.

„Það er ástæðan fyrir því að við eigum eftir að reyna hafa Airbus A380 eins lengi í flotanum og við mögulega getum því að þessi pláss eiga eftir að verða mjög eftirsótt“.

Clark segir að A380 hafi skapað um 80% af heildarhagnaði Emirates fyrir heimsfaraldurinn og eigi flugfélagið eftir að endurinnrétta vélarnar og setja meiri nýjungar um borð er kemur að þægindum fyrir farþega og spáir hann því að þær eiga eftir að vera allt að 15 ár í flotanum til viðbótar að minnsta kosti.







  fréttir af handahófi

Airbus og Qantas þróa lífrænt eldsneyti úr sykri

30. mars 2023

|

Airbus og ástralska flugfélagið Qantas hafa fest kaup á eldsneytishreinsunarstöð sem notuð verður til þess að breyta sykri yfir í lífrænt eldsneyti.

Þegar farið að bera á seinkunum á flugvöllum í Evrópu

7. júní 2023

|

Þegar er farið að örla á seinkunum á samgöngum í Evrópu og hafa evrópsk yfirvöld varað þá aðila sem eiga hlut að máli að huga sem fyrst að því að grípa í taumana til að draga úr áhrifum sem gæti or

FAA fer fram á 25 tíma upptöku úr hljóðritum

17. mars 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa ákveðið að innleiða reglugerð sem fer fram á að hljóðriti um borð í flugvélum varðveiti upptökur í 25 klukkustundir áður en ritað er yfir þær aftur.

  Nýjustu flugfréttirnar

Flugfloti Wizz Air nálgast 200 þotur

8. júní 2023

|

Senn styttist í að ungverska lágfargjaldafélagið Wizz Air taki við sinni tvö hundruðustu flugvél en við lok seinasta fjármálaárs, þann 31. mars sl. stóð flugflotinn í 179 flugvélum og samanstendur a

Þegar farið að bera á seinkunum á flugvöllum í Evrópu

7. júní 2023

|

Þegar er farið að örla á seinkunum á samgöngum í Evrópu og hafa evrópsk yfirvöld varað þá aðila sem eiga hlut að máli að huga sem fyrst að því að grípa í taumana til að draga úr áhrifum sem gæti or

Hætti við flugtak og rak í veg fyrir þotu í flugtaki vegna hliðarvinds

5. júní 2023

|

Rannsóknarnefnd flugslysa í Frakklandi hefur gefið frá sér skýrslu varðandi alvarlegt flugatvik sem átti sér stað á Charles de Gaulle flugvellinum í París fyrir tveimur og hálfu ári síðan.

Fyrri lendingarkeppnin sumarsins fór fram á Tungubökkum

5. júní 2023

|

Fyrri lendingarkeppni sumarsins á vegum Flugklúbbs Mosfellsbæjar fór fram í gær á Tungubökkum.

Icelandair og Turkish Airlines undirrita samstarfssamning

5. júní 2023

|

Icelandair hefur undirritað samstarfssamning við Turkish Airlines um sameiginlega farmiðaútgáfu sem þýðir að farþegar fá aðgang að áfangastöðum flugfélaganna beggja á einni bókun í gegnum bókunarkerf

Nýtt breskt flugfélag festir kaup á Airbus A380 risaþotu

1. júní 2023

|

Nýtt breskt sprotaflugfélag, Global Airlines, hefur fest kaup á sinni fyrstu þotu sem er risaþota af gerðinni Airbus A380 sem mun hefja áætlunarflug frá Gatwick-flugvellinum í London næsta vor.

SAS opnar fyrir bókanir með fyrstu rafmagnsflugvélinni

1. júní 2023

|

SAS (Scandinavian Airlines) hefur opnað fyrir bókanir fyrir fyrstu flugferðir félagsins með rafmagnsflugvél þrátt fyrir að áformað sé að fyrsta rafmagnsflugið verði ekki flogið fyrr en árið 2028.

Air Greenland tekur Boeing 777 og 737 á leigu tímabundið

31. maí 2023

|

Air Greenland hefur neyðst til þess að taka tímabundið á leigu Boeing 777 þotu og Boeing 737 þotu eftir að nýja Airbus A330neo breiðþota félagsins varð fyrir atviki á flugvellinum í Kaupmannahöfn f

Nýtt flugfélag í Sádí-Arabíu sagt ætla að panta 150 MAX-þotur

29. maí 2023

|

Flugfélagið Riyadh Air er sagt í viðræðum við Boeing um stóra pöntun í að minnsta kosti 150 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX.

Efla öryggi varðandi brautarátroðning á tólf flugvöllum

25. maí 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla að verja 100 milljónum dölum í sérstakt verkefni sem miðar af því að efla öryggi er varðar brautarátroðning á 12 flugvöllum vestanhafs.

';

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá