flugfréttir
Fordæma ákvörðun SkyWest um að hætta flugi til 29 borga
Farþegaþota frá United Express
Félag bandarískra atvinnuflugmanna (ALPA) hefur fordæmt ákvörðun flugfélagsins SkyWest Airlines sem tilkynnti á dögunum að til stæði að hætta að fljúga til 29 minni borga í Bandaríkjunum.
Félagið segir þessa aðgerð mjög alvarlega í ljósi þess að ríkisstjórn Bandaríkjanna sé þegar búin að niðurgreiða
flug til þessara áfangastaða með ríkisstyrk til flugfélagsins upp á 2 milljarða Bandaríkjadali vegna heimsfaraldursins
og kemur fram að flugfélagið verði því að standa við sitt.
Í bréfi sem ALPA sendi til samgönguráðuneytisins segir félagið að um mjög „svívirðilegar aðgerðir“ að ræða
og séu skattgreiðendur nú þegar búnir að greiða í styrk til félagsins en SkyWest Airlines sagði fyrr í mánuðinum að
flugfélagið gæti ekki flogið til þessarra 29 borga vegna skorts á flugmönnum.
Þá bendir ALPA á að SkyWest Airlines hafði einum mánuði áður sótt um leyfi til þess að fljúga fleiri
flugleiðir sem niðurgreiddar væru af bandarískjum stjórnvöldum og er um að ræða leiðir sem falla undir
reglugerðir sem tilgreinir borgirnar sem mikilvægar flugleiðir eða „Essential Air Service“ (EAS).
Samgönguráðuneytið hefur svarað SkyWest Airlines þar sem vitnað er í samkomulag sem flugfélagið hefur gert og
sé félaginu skylt að klára núverandi samningstíma en þá hefur einnig verið óskað eftir tilboðum frá öðrum
bandarískum flugfélögum ef SkyWest Airlines nær ekki að efna sínar skyldur.
Grunnreglan í Essential Air Service sáttmálanum gerir ráð fyrir því að skuldbundið flugfélag verði að fljúga að minnsta kosti
tvö áætlunarflug fram og til baka á dag, sex daga vikunnar frá þeirri borg sem fellur undir samninginn og sé flogið
til tengiflugvallar þar sem farþegar geta komist með öðru flugi á aðra áfangastaði.
Bandarísk flugfélög hafa átt í erfiðleikum með að finna flugmenn að undanförnu þar sem þúsundum flugmanna var sagt
upp vegna heimsfaraldursins og hefur gengið erfiðlega að ráða flugmenn á ný í kjölfarið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.