flugfréttir
Síðasta Learjet þotan afhent
- 60 ára saga framleiðslu Learjet tekur enda
Starfsmenn Bombardier fyrir framan síðustu Learjet-einkaþotuna sem afhent var sl. mánudag
Flugvélaframleiðandinn Bombardier afhenti sl. mánudag síðustu Learjet einkaþotuna og lýkur þar með 60 ára sögu framleiðslu þessarar flugvélartegundar sem hefur verið í framleiðslu síðan árið 1963.
Síðasta þotan er af gerðinni Learjet 75 og var hún afhent til fyrirtækisins Northern Jet
Management í Bandaríkjunum.
Learjet afhenti yfir 3.000 einkaþotur á þessum sex áratugum og eru yfir 2.000 þeirra
ennþá í umferð í heiminum að sögn Bombardier en þrjúþúsundasta þotan var afhent
í júní árið 2017.
Það var í febrúar í fyrra
sem að Bombardier tilkynnti að til stæða að hætta framleiðsluna á Learjet einkaþotunum
og einblína þess í stað eingöngu á stærri einkaþotur sem eru arðbærari fyrir framleiðandann.
Fyrsta Learjet einkaþotan var afhent árið 1964
Það var frumkvöðullinn William Powell Lear (eða Bill Lear) sem átti af hugmyndina af Learjet einkaþotunni á sjöunda
áratugnum og varð einkaþotan fljótt mjög vinsæl en meðal þeirra sem flugu um í Learjet einkaþotum
voru Elvis Presley og Frank Sinatra.
Fyrsta Learjet einkaþotan var af gerðinni Learjet 23 og flaug hún jómfrúarflugið sitt þann 7. október
árið 1963.
Framleiddar voru tegundirnar Learjet 24, 25, 31 og 35 en á tíunda áratugnum
keypti Bombardier framleiðsluna og komu í kjölfarið á markað Learjet 40, 45, 60 auk fleiri
tegunda á borð við Learjet 70 og Learjet 75.
Síðasta Learjet einkaþotan sem var afhent var af gerðinni Learjet 75 en meðal þeirra sem flugu um í Learjet 23 þotunni voru til að mynda Elvis Presley og Frank Sinatra
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.