flugfréttir
Upp úr slitnaði í viðræðum milli SAS og flugmanna
SAS hefur tekið upp nýja rekstaráætlun sem nefnist „SAS Forward“ en mikil óánægja ríkir með hana meðal flugmanna
Samningaviðræður á milli SAS (Scandinavian Airlines) og sænskra flugmanna fóru út um þúfur nánast í byrjun fundar og gengu forsvarsmenn sænska verkalýðsfélagsins Svensk Pilotforenging út úr fundarherbergi þegar fundurinn var varla byrjaður.
SAS hefur tekið upp nýja rekstaráætlun sem nefnist „SAS Forward“ en með henni stefnir
flugfélagið á að hagræða rekstri sínum með því að ná fram sparnaði upp á 102 milljarða króna.
SAS varar við því að staða flugfélagsins hafi sjaldan verið eins alvarleg og verði félagið
að tryggja samkeppnishæfni sína til þess að standa sig á alþjóðamarkaði.
Flugfélagið segir að það sé mikið áhyggjuefni að forsvarsmenn verkalýðsfélagsins hafi gengið strax
út og sé verið með því að vekja upp óvissu varðandi framhaldið og geti það haft áhrif á starfsemi
SAS og allra þeirra sem þarf starfa.
Meðal þess sem rekstaráætlunin SAS Forward miðar af eru breytingar á leiðarkerfi og flugflota
á þá hefur félagið komið upp með tvær aðskild dótturfyrirtæki sem nefnast SAS Link og SAS Connect
sem mun tilheyra sitthvorri flugvélategundinni, Embraer-þotunum annarsvegar og Airbus-þotunum
hinsvegar.
SAS sagði upp hundruðum flugmanna í byrjun árs 2020 vegna heimsfaraldursins en nú hefur félagið byrjað að endurráða flugmenn en á allt öðrum forsendum og er starfsmannafélagið ósátt með að SAS hafi meðal annars lengt vinnutíma flugmanna og skert
launin á sama tíma.
Martin Lindgren, formaður Svensk Pilotforening, telur að SAS sé að nota óheiðarlega aðferð sem er betur þekkt sem „uppsögn og endurráðning“ og með stofnun SAS Link og SAS Connect hafi félagið stofnað einnig sína eigin ráðningarskrifstofu
til þess að þurfa ekki að efna skyldur sínar við þá flugmenn sem á að ráða til baka.
Þá segir Lindgren að þeir flugmenn sem samþykki ekki þær breytingar sem gerðar hafa verið
þurfi að fara í gegnum nýju ráðningarskrifstofuna og á þeim forsendum hafi verkalýðsfélagið engan
áhuga að setjast að samningarborðinu með stjórn SAS.
Lindgren er ekki bjartsýnn á að nein lausn sé í sjónmáli og sér hann fram á að gripið verði til harðra aðgerða í starfsmannadeilunni. - „Þetta lítur ekki vel út. Það þarf að verða breyting
innan stjórnar flugfélagsins“, segir Lindgren.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.