flugfréttir

Fimm áhugasamir kaupendur að Piaggio koma til greina

4. apríl 2022

|

Frétt skrifuð kl. 10:57

Piaggio Aerospace framleiðir meðal annars hina sérstöku Piaggio Avanti P.180 flugvél

Fimm áhugasamir kaupendur sem vilja taka yfir rekstur ítalska flugvélaframleiðandans Piaggio Aerospace hafa verið valdir til þess að fá aðgang að bókhaldi og rekstargögnum fyrirtækisins sem er næsta skref í vali á nýjum eigenda ef sala á fyrirtækinu nær fram að ganga.

Vincenzo Nicastro, sérstakur fulltrúi Piaggio Aerospace, segir að 11 aðilar og fjárfestar hafi sýnt fyrirtækinu áhuga en fimm þeirra hafa nú verið valdir í hópi þeirra sem koma sérstaklega til greina og fá þeir með því aðgang að gögnum sem snúa að framleiðslunni og fjármálum.

Aðilarnir fimm hafa frest til 28. apríl til þess að gera endanlega upp hug sinn og hafði Nicastro lýst því yfir að nýr eigandi verði valinn um mitt árið en ítalska ríkisstjórnin mun samt sem áður þurfa að gefa leyfi fyrir kaupunum áður en þau ganga í gegn.

Strangar kröfur eru gerðar til nýja eigandans þar sem krafist er ítarlegrar rekstaráætlunar svo tryggt sé að viðkomandi aðili sé hæfur til þess að taka við rekstri Piaggio og halda utan um framleiðsluna og starfsmannamál.

Rekstur Piaggio Aerospace hefur notið gjaldþrotaverndar síðan árið 2018 eftir að sjóðurinn Mubadala í Abu Dhabi dró sig út úr rekstri fyrirtækisins sem fjárfestir.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga