flugfréttir
Júmbó-þotu meinað brottför vegna viðskiptahafta á Rússland
Boeing 747 fraktþotan frá CargoLogicAir UK á Hahn-flugvellinum í Frankfurt
Stjórnvöld í Þýskalandi hafa komið í veg fyrir að júmbó-fraktþota geti hafi sig til flugs frá Hahn-flugvellinum í Frankfurt vegna viðskiptaþvingana á Rússland.
Þotan, sem er af gerðinni Boeing 747-400F, flýgur á vegum breska fyrirtækisins CargoLogicAir UK sem er hluti
af rússneska fyrirtækinu Volga-Dnepr Group. Þotan lenti í Frankfurt
til þess að gangast undir viðhaldsskoðun en hún mun verða um kyrrt á flugvellinum vegna tengsla við Rússland.
„Þar sem að flugfélagið CargoLogicAir UK og flugvélin heyra undir viðskiptaþvinganir þá hefur verið komið á
brottfararbanni“, segir í tilkynningu.
Þýski fjölmiðillinn Bild hefur eftir samgönguráðuneyti Þýskalands að eigendur flugfélagsins séu rússneskir ríkisborgarar
og því eiga viðskiptaþvinganir Evrópusambandsins við.
Kyrrsetningin á júmbó-fraktþotunni mun skila inn tekjum fyrir Hahn-flugvöllinn þar sem eigendur vélarinnar þurfa
að greiða geymslugjöld sem nema tæplega 170.000 krónum á dag fyrir flugvélar af gerðinni Boeing 747.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.