flugfréttir
FAA gefur út hæstu sekt sem um getur vegna flugdólgs
- Farþegi sektar um 10,5 milljónir króna vegna slæmrar hegðunar
FAA byrjaði með „zero-tolerance“ herferðina í fyrra sem miðar af því að stemma stigu við flugdólgum
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa gefið út hæstu sekt sem gefin hefur verið út á hendur flugdólgi sem nemur alls 10,5 milljónum króna.
Um er að ræða atvik sem átti sér stað þann 7. júlí í fyrra er kona lét illum látum um borð í innanlandsflugi í Bandaríkjunum á leið frá Dallas til Charlotte.
Konan féll er hún stóð á gangi vélarinnar og bauðst flugfreyjan til þess að hjálpa henni
að standa á fætur en konan ýtti henni frá sér og reyndi að opna neyðarútgang um borð.
Tveir áhafnarmeðlimir reyndu að hemja konuna en þá sló hún frá sér og barði aðra
flugfreyjuna í höfuðið og reyndi að skalla hina áður en hún fór að sparka í áttina að áhöfn
og öðrum farþegum um borð. Konan var handtekin við komuna til Charlotte.
„Ef þú ert í flugvél þá skalti ekki haga þér eins og asni og stofna lífi áhafnarinnar og
annarra farþega í hættu. Ef þú hlýðir því ekki þá verðuru sektaður“, segir Pete Buttigieg hjá
FAA en sektin var gefin út þann 8. apríl síðastliðinn.
Sektin er 600.000 krónum hærri en sú sekt sem átti fyrra metið hvað upphæð varðar
en þá var um að ræða 9,9 milljóna króna sekt sem gefin var út til farþega sem gerðist
flugdólgur um borð í innanlandsflugi hjá Delta Air Lines frá Las Vegas til Atlanta þann 16. júlí
í fyrra.
Sá farþegi gerði tilraun til þess að faðma og kissa farþega sem sat við hlið hennar
og gerði einnig tilraun til þess að opna neyðarútgang, neitaði að setjast aftur í sætið sitt
þrátt fyrir fyrirmæli og beit annan farþega.
Sektirnar tvær eru þær hæstu sem gefnar hafa verið út í tengslum við flugdólga en FAA segir að flugmálayfirvöld hafi gefið út sektir upp á 2 milljónir Bandaríkjadala (258 milljónir)
frá því að „zero-tolerance“ herferðin hófst hjá FAA í fyrra.
Fram kemur að í dag hafi borist tilkynningar um 7.062 atvik vegna flugtólga frá því í fyrra en í 4.997 atvikum var um að ræða farþega sem neituðu að vera með andlitsgrímur vegna heimsfaraldursins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.