flugfréttir

Skrá erlendar flugvélar á rússneska skráningu án leyfis

- Evrópusambandið bætir 21 rússnesku flugfélag á svarta listann

13. apríl 2022

|

Frétt skrifuð kl. 13:34

Flugvélar í flota Aeroflot á Sheremetyevo-flugvellinum í Moskvu

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins hefur bætt 21 rússnesku flugfélag á svarta listann sem þýðir að þau flugfélög fá ekki að fljúga inn í evrópska lofthelgi.

Evrópusambandið segir að þetta endurspegli þá alvarlegu öryggisbresti sem komnir eru upp eftir að rússnesk yfirvöld lýsti því yfir að til standi að endurskrá flugélar, í eigu erlendra aðila, á rússneskra skráningu án leyfis sem brýtur í bága við lög um skráningu loftfara auk þess sem um er að ræða brot á Chicago-sáttmálanum.

„Rússnesk flugmálayfirvöld hafa gefið rússneskum flugfélögum leyfi til þess að fljúga hundruðum flugvéla, sem eru í eigu erlendra flugvélaleigufyrirtækja, þrátt fyrir að búið sé að svipta þær flugvélar flughæfnisvottun sinni“, segir Adina Valean, yfirmaður samgöngumála hjá Evrópusambandinu.

Adina tekur fram að þessi ákvörðun Evrópusambandins hafi ekkert að gera með viðskiptaþvinganir á hendur Rússa heldur sé verið að brjóta alþjóðlegar reglugerðir í fluginu er kemur að flugöryggi og vottun loftfara.

Aeroflot er meðal þeirra flugfélaga sem fer á svarta listann í Evrópu

Meðal þeirra flugfélaga sem hafa verið sett á svarta listann eru Aeroflot, S7 Airlines og Rossiya Airlines en þessi þrjú flugfélög hafa í flota sínum farþegaflugvélar frá Boeing og Airbus sem teknar eru á leigu frá erlendum flugvélaleigum sem hafa reynt að fá flugvélarnar sínar til baka en án árangurs.

Þess í stað hafa yfirvöld í Rússlandi gefið flugfélögum leyfi til þess að taka þær af erlendum skráningum og skrá þær á rússneskar skráningar sem stenst ekki alþjóðalög né viðskiptasáttmála við leigutaka.

Evrópusambandið segir að það sé engin sönnun fyrir því að flugmálayfirvöld í Rússlandi hafi unnið þá vinnu sem til þarf til þess að gefa út fullnægjandi vottun og sé ekki möguleiki að slíkt sé hægt á svona skömmum tíma fyrir þann fjölda flugvéla sem eru í Rússlandi í eigu erlendra aðila.

Rússnesk flugmálayfirvöld fullyrða að verið sé að framfylgja alþjóðareglugerðum

Rússnesku flugmálayfirvöldin, Rosaviatsia, hefur samt sem áður lýst því yfir að gefið hafi verið út vottun til fjölmargra viðhaldsfyrirtækja til þess að framkvæma skoðun á fjölmörgum Boeing og Airbus flugvélum til að uppfylla öll skilyrði og allar reglugerðir svo hægt sé að skrá flugvélarnar á rússneska skráningu án þess að þörf sé á því að hafa afskipti við erlendar eigendur þeirra.

Evrópusambandið sakar Rússa um að brjóta Chicago-sáttmálann með þessum aðgerðum og benda á að samkvæmt sáttmálanum kemur fram að ekki sé hægt að breyta skráningu á flugvélum án leyfis og ekki sé löglegt að hafa flugvélar á tveimur skráningum en Rosaviatsia segir að allar breytingarnar sem verið sé að gera með skráningu flugvélanna séu í samræmi við reglugerðir Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO).

Yfirvöld í Evrópu segja hinsvegar að Rosaviatsia hafi ekki gefið frá sér nein gögn því til sönnunnar og engar upplýsingar um verkferlana sem þeir segjast vera að fara eftir og hafa miklar efasemdir um að hægt sé að gera slíkt á svo stuttum tíma og í ljósi viðskiptahafta er bent á að skortur sé á aðgengi að varahlutum og þjónustu til rússneskra viðhaldsfyrirtækja svo þau geti unnið sína vinnu í samræmi við alþjóðareglugerðir.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga