flugfréttir
FAA varar við bilun í hreyflum í kjölfar langtímageymslu
- Gefa út fyrirmæli um mögulega ryðmyndun í hreyflum
Boeing 777 þota frá United Airlines í langtímageymslu
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa gefið frá sér viðvörun þar sem krafist er að skoðun verði gerð á tveimur tegundum af þotuhreyflum og kemur fram að möguleiki á ryði eftir langtímageymslu á flugvélum vegna heimsfaraldursins geti ollið því að bilun getur komið upp í hreyflunum á flugi.
Fyrirmælin, sem gefin voru út í þessari viku, beinast að PW4000 hreyflum frá Pratt & Whitney sem
knýja áfram þotur á borð við Boeing 777 og svo hinsvegar CF34 hreyflum frá GE Aviation
sem knýja áfram Canadair CRJ þotur frá Bombardier og E-þoturnar frá Embraer.
Fram kemur að þotur sem hafa verið í geymslu eða kyrrsettar í meira en 250 daga séu í áhættuhópi
og sé hætta á að mikið ryð gæti hafa safnast upp sem þarf að huga að áður en þeim flugvélum er flogið á ný.
Bent er á nokkur atvik sem hafa komið upp í CF34 hreyflum á CRJ flugvélum og eitt atvik á CR1000
þotu sem átti sér stað þann 11. ágúst í fyrra sem varð til þess að slökkva þurfti á öðrum hreyflinum
í miðju flugi en sú flugvél hafði verið í geymslu á flugvelli sem er í 10 kílómetra fjarlægð frá
ströndinni.
Í því tilviki þá brugðust sjálfvirk kerfi flugvélarinnar við með því að draga úr eldsneytisinngjöfinni og læstist inngjöfin á litlu afli sem er föst í þeim ham þar til slökkt
hefur verið á hreyflinum og hann endurræstur.
FAA segir það vera áhyggjuefni þar sem á næstu dögum muni fjölmargar Boeing 777 þotur
snúa til baka í umferð úr langtímageymslu sem gæti orðið til þess að bilun á báðum hreyflum gæti
komið upp sé ekki gripið til þess ráðs að framkvæma sérstaka skoðun með þetta í huga.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.