flugfréttir
Boeing 737-800 aftur í notkun hjá China Eastern Airlines

Boeing 737-800 þota frá kínverska flugfélaginu China Eastern Airlines
Kínverska flugfélagið China Eastern Airlines hefur hafið á ný áætlunarflug með Boeing 737-800 þotunum en flugfélagið kyrrsetti þær allar í kjölfar flugslyss sem átti sér stað þann 21. mars eftir að ein þota af þeirri gerð fórst í innanlandsflugi í Kína í síðasta mánuði.
China Eastern Airlines byrjar aðeins með nokkrar þotur og flaug félagið þann 17. apríl
fyrsta flugið í mánuð og var aðeins þá um að ræða eitt flug á milli Kunming og Chengdu og er verið
að undirbúa nokkrar Boeing 737-800 þotur til áætlunarflugs á meðan flest allar aðrar þotur af
þessari gerð verða áfram kyrrsettar.
Orsök flugslyssins eru enn óljós en þotan var að nálgast lækkun að borginni Chengdu eftir flug frá borginni Kunming og hafði þotan flogið 3/4 af flugleiðinni
á milli borganna tveggja þegar hún missti hæð og fór niður um 30.000 fet á tveimur mínútum áður
en hún skall til jarðar með þeim afleiðingum að allir um borð létu lífið.
Flugfélagið ákvað að hefja aftur áætlunarflug með 737-800 þrátt fyrir að ekki sé enn búið að birta
bráðabirgðarskýrslu en kínversk flugmálayfirvöld segja að von sé á skýrslunni þann 20. apríl
næstkomandi.


18. maí 2022
|
London City flugvöllurinn stefnir á að verða fyrsti flugvöllurinn í heimi til að verða að öllu kolefnalaus og það fyrir árið 2030.

17. maí 2022
|
Bandaríska lágfargjaldafélagið Spirit Airlines hefur ekki endanlega útilokað yfirtökutilboð Jetblue en félagið hefur komið með annað tilboð í félagið og hefur Spirit Airlines ákveðið að fara yfir það

28. apríl 2022
|
Það er ekki hægt að komast hjá því að hækka flugfargjöld miðað við þá hækkun sem orðið hefur á verði á þotueldsneyti.

28. júní 2022
|
JetBlue Airways hefur komið með enn annað tilboðið í Spirit Airlines og kemur tilboðið á síðustu stundu áður en hluthafar Spirit Airlines kjósa um fyrirhugaðan samruna félagsins við Frontier Airlines

22. júní 2022
|
Ráðið hefur verið í stöðu skólastjóra og stöðu yfirkennara bóklegrar kennslu hjá Flugakademíu Íslands. Óskar Pétur Sævarsson var ráðinn skólastjóri og Davíð Brár Unnarson yfirkennari bóklegrar kennslu

21. júní 2022
|
Breska lágfargjaldafélagið easyJet segir að til standi að leggja inn pöntun til Airbus í 56 þotur af gerðinni Airbus A320neo og þá sé einnig áætlað að breyta pöntunum í átján A320neo þotur yfir í A3

20. júní 2022
|
Alþjóðasamtök flugfélaganna (IATA) hafa gefið út endurgerða fjárhagsspá fyrir flugfélögin þar sem talið er að afkoma flugfélaganna verði betri eftir heimsfaraldurinn en gert var ráð fyrir í upphafi

16. júní 2022
|
Suður-kóreska flugfélagið Asiana Airlines hefur ákveðið að dusta rykið af risaþotunum Airbus A380 þar sem að eftirspurn eftir flugi hefur tekið við sér að nýju eftir heimsfaraldurinn.

14. júní 2022
|
Farþegaþota af gerðinni Airbus A320 frá easyJet lýsti yfir neyðarástandi sl. sunnudag (þann 12. júní) eftir að annar flugmaður vélarinnar brá sér á salernið og kom ekki til baka í stjórnklefann fyrir

14. júní 2022
|
Ungvesrka lágfargjaldafélagið Wizz Air hefur þurft að svara fyrir ummæli framkvæmdarstjóra flugfélagsins og segir félagið í yfirlýsingu sinni að það sé langt frá því að Wizz Air setji flugöryggi í an

10. júní 2022
|
Lendingarkeppni fór fram á flugvellinum á Tungubökkum í Mosfellsbæ í gær en keppnin hófst klukkan 19:30 og var hluti af hinu vikulega fimmtudagskaffi sem fram fer á Tungubökkum á sumrin þar sem flugm