flugfréttir
Flugstjóri fór úr axlarlið í stjórnklefa í miðju flugi
- Lenti í Faro á leið frá London Luton til Agadir í Marokkó
Airbus-þota frá easyJet á flugvellinum í Faro í Portúgal
Farþegaþotu af gerðinni Airbus A320neo frá easyJet var snúið til Portúgal á leið sinni frá Bretlandi til Marokkó eftir að flugstjóri þotunnar fór úr axlarlið í stjórnklefanum.
Þotan var á leið frá Luton-flugvellinum í London til Agadir í Marokkó þann 10. apríl síðastliðinn þegar
aðstoðarflugmaðurinn lýsti yfir neyðarástandi þar sem flugstjórinn hefði veikst og gæti ekki
lengur flogið.
Þotan var þá í 37.000 feta hæð í um 111 kílómeta fjarlægð norður af Faro þegar flugmaðurinn lýsti
yfir neyðarástandi og lenti hann flugvélinni 18 mínútum síðar á flugvellinum í Faro.
Við komuna til Faro var flugstjórinn fluttur á sjúkrahús og farþegar fluttir á nærliggjandi hótel og fluginu aflýst.
Fjórum dögum síðar var gefið upp að ástæðan hefði verið þar sem flugstjórinn hefði farið úr
axlarlið og gat hann ekki flogið lengur sökum sársauka.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.