flugfréttir

Bandarísk flugfélög glíma við skort á flugmönnum

- Þurfa 13.000 flugmenn á ári en aðeins 5-7 þúsund flugmenn tiltækir

22. apríl 2022

|

Frétt skrifuð kl. 09:06

United Airlines segir að næstu ár verði mjög krefjandi fyrir bandarísk flugfélög vegna skorts á flugmönnum

Scott Kirby, framkvæmdarstjóri United Airlines, segir að skortur á flugmönnum vestanhafs gæti komið í veg fyrir að bandarísk flugfélög geti aukið umsvif sín á næstu fimm árum í takt við aukna eftirspurn í farþegaflugi.

Ben Minicucci, framkvæmdarstjóri Alaska Air Group, tekur í sama streng og segir flugmannaskortinn stærsta áhyggjuefnið sem bandarísk flugfélög standa frammi fyrir á næstunni.

Kirby segir að nýleg greining sem United Airlines lét gera fyrir flugfélagið sýni sláandi niðurstöður þar sem fram kemur að iðnaðurinn nái að útskrifa um 5.000 til 7.000 nýja flugmann árlega en í ár þurfi bandarísk flugfélög að ráða um 13.000 flugmenn.

Þá kemur fram að flugfélögin séu að kljást við tvö vandamál sem eru annars vegar hámarksflugtímafjöldi sem farið er fram á að viðkomandi flugmaður hefur til að geta fengið ráðningu sem flugmaður í Bandaríkjunum og hinsvegar sá fjöldi flugmanna sem var sagt upp störfum í upphafi heimsfaraldursins en stór hluti þeirra flugmanna hafa ekki snúið aftur í háloftin og hafa leitað á önnur mið er kemur að atvinnu.

Flugfélögin að fá aðgerðirnar vegna heimsfaraldursins í bakið

„Á þeim tíma var ekki nokkur leið til þess að segja til um hversu lengi þessi faraldur myndi geisa og hver langtímaáhrifin yrðu. Þannig að flugfélögin gerðu allt til þess að verja lausafjárstöðu sína með því að grípa til uppsagna og fækka flugvélum í flota sínum - Þessar aðgerðir eru flugfélögin að fá núna í bakið“, segir Kirby.

Kirby bendir á að það sé ekki til nein töfralausn og þrátt fyrir að bandarísk flugfélög hafi reynt að koma upp sínum eigin flugskóla til þess að bregðast við vandanum þá dugar það ekki til þar sem eftirspurnin er að koma til baka fyrr en menn gerðu ráð fyrir.

Frá Aviate flugskólanum þar sem United Airlines vonast til þess að ná að þjálfa 5.000 nýja flugmenn á næstu 10 árum

United Airlines fór af stað með flugþjálfunarverkefnið Aviate árið 2021 eftir að flugfélagið fjárfesti í flugskóla í Phoenix þar sem til stendur að þjálfa um 5.000 nýja flugmenn á næstu 10 árum en Kirby bendir á að það þurfi svo miklu meira til er kemur að því að undirbúa nýja flugmenn fyrir starf hjá flugfélögunum.

„Það er hægt að setja upp flugskóla til að útskrifa flugmenn með fyrsta skírteinið sitt en í framhaldinu þurfa þeir að ná flugtímafjölda sem telur a.m.k. 1.500 flugtíma til að uppfylla skilyrði sem farið er fram á við ráðningu samkvæmt reglugerðum frá bandarískum flugmálayfirvöldum“, bendir Kirby á.

„Að útskrifa 7.000 flugmenn á ári gæti verið möguleiki en það er aðeins helmingurinn af þeim 13.000 flugmönnum sem flugfélögin vestanhafs þurfa á hverju ári og sú tala á við verstu spá“, segir Kirby sem bendir á að United Airlines ráði um 200 nýja flugmenn í hverjum mánuði.

Minicucci hjá Alaska Air Group segir að fyrirtækið ætli að ráða um 600 nýja flugmenn á þessu ári fyrir stóru flugfélögin í samsteypunni og nokkur hundruð flugmenn fyrir minni reksturinn sem tilheyrir Horizon Air en hann bendir á að það sé mjög krefjandi.

„Þetta verður ein mesta áskorunin sem flugiðnaðurinn mun þurfa að kljást við. Öll flugfélög verða að taka sínum örlögum eins og þau birtast og tækla það á sinn hátt“, segir Minicucci.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga