flugfréttir

Delta mun greiða flugfreyjum á meðan farþegar ganga um borð

- Fyrst allra flugfélaga í Bandaríkjunum til að greiða þann vinnutíma

27. apríl 2022

|

Frétt skrifuð kl. 15:05

Almennt fá flugfreyjur og flugþjónar ekki greidd laun fyrr en allir eru komnir um borð og búið að loka öllum útgöngum

Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines hefur ákveðið að greiða vinnutíma hjá flugfreyjum og flugþjónum fyrir þann tíma þegar farþegar eru að ganga um borð og koma sér fyrir en hingað til hefur greiddur vinnutími ekki hafist fyrr en búið er að loka útgöngum á flugvélum fyrir brottför.

Um tímamót er að ræða sem gæti haft áhrif á öll önnur flugfélög í Bandaríkjunum og er Delta Air Lines fyrsta flugfélagið til þess að hefja formlegan vinnutíma flugfreyja og flugþjóna fyrr en hefur tíðkast.

Ekki er þó um fullt tímakaup að ræða en Delta mun greiða 50% af tímakaupa fyrir áætlaðan tíma sem tekur að koma farþegum um borð sem eru um 40 til 50 mínútur.

Í skilaboðum sem Delta sendir starfsfólki sínu kemur fram að þessi breyting endurspegli það mikilvæga hlutverk sem flugfreyjur og flugþjónar gegna þann tíma sem farþegar ganga um borð og tryggja öryggi þeirra.

Þá kemur fram að aukagreiðslan fyrir þann tíma bætist við 4 prósenta launahækkun sem flugfreyjur og flugþjónar fengu í síðasta mánuði.

Aukagreiðslan fyrir tímann sem farþegar ganga um borð kemur í kjölfar áskorunar sem gerð var fyrir nokkrum mánuðum síðan er félag flugfreyja skoraði á að þau fengu greidd laun fyrir þennan tíma.

„Við fáum aðeins greidd laun fyrir flugtímann sem hefst þegar búið er að loka öllum útgöngum fyrir brottför og flugmennirnir taka bremsuna af og vélinni er ýtt frá hliði en ekki þegar farþegar eru komnir um borð og ekki heldur ef það er seinkun á brottför. Við fáum ekki greitt þótt að bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) krefjist þess að við vinnum sérhæfð störf við að framfylgja flugöryggi“, kom fram í yfirlýsingu en um 160.000 undirskriftir söfnuðust.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga