flugfréttir
Panta yfir 50 þotur af gerðinni Airbus A350, A321XLR og A220
- Qantas velur A350-1000 fram yfir Dreamliner fyrir „Project Sunrise“
Tölvugerð mynd af Airbus A350-1000, Airbus A321XLR og Airbus A220 í litum Qantas
Ástralska flugfélagið Qantas hefur formlega ýtt úr vör áætluninni Project Sunrise sem er framtíðarstefna Qantas í að bjóða upp á beint flug frá Ástralíu til Evrópu og Norður-Ameríku með nýjustu breiðþotum sem völ er á en flugfélagið hefur verið í 3 ár að gera upp hug sinn hvort Boeing 787 þotur verði fyrir valinu eða Airbus A350-1000.
Qantas kynnti „Project Sunrise“ áætlunina upphaflega árið 2017 en nú hefur félagið gert upp hug sinn og var tilkynnt í morgun að félagið hefði staðfest pöntun í tólf Airbus A350-1000 breiðþotur.
Félagið ætlar meðal annars að hefja beint flug frá Sydney til New York og frá Sydney
til London Heathrow með A350-1000 þotunum árið 2025 og verða þoturnar afhentar frá árinu 2025 til 2028.
Airbus A350-1000 þotur Qantas munu taka 238 farþega og skiptast niður í fjögur farþegarými en flest
önnur flugfélög hafa kosið útfærslu á farrýmum með þeim hætti að þoturnar geti tekið yfir 300 farþega.
A350-1000 þotur Qantas verða sérstaklega innréttaðar svo þægilega fari um farþega á svo löngu flugi
og koma þér með sérstöku þægindarými svo farþegar geti hreyft sig og spókað sig um og teygt úr sér.
Qantas mun fá fyrstu Airbus A350-1000 þoturnar afhentar árið 2025
Qantas sér fram á bjartari tíma í kjölfar heimsfaraldursins og sér félagið fram á að eftirspurn eftir flugi
til og frá Ástralíu eigi eftir að ná sér á strik fyrr en gert var ráð fyrir og þá er séð fram á að innanlandsflugið fari á næstunni að nálgast þann farþegafjölda sem var árið 2019.
Panta einnig Airbus A321XLR og Airbus A220 þotur
Þá tilkynnti félagið einnig í morgun að til stæði að staðfesta pöntun í 40 minni þotur frá Airbus
sem verða af gerðinni Airbus A220 og Airbus A321XLR en XLR-týpan verður langdrægasta farþegaþota heims í flokki
þeirra sem koma með einum gangi („narrowbodies“).
Þær fyrstu verða afhentar árið 2023 en flugfélagið hefur einnig tryggt sér kauprétt á 94 þotum
til viðbótar sem yrðu þá afhentar fram til ársins 2034.
A220 þoturnar mun Qantas nota í innanlandsflugi í Ástralíu á meðan Airbus A321XLR þoturnar
verða notaðar í flugi til áfangastaða í Suðaustur-Asíu og til eyja í Kyrrahafinu.
Airbus A220 þoturnar munu koma með sæti fyrir 137 farþega sem er 25% fleiri sæti samanborið við Boeing 717
þoturnar sem þær munu leysa af hólmi og A321XLR þoturnar koma með sæti fyrir 200 farþega sem er 15 prósent
fleiri sæti en Boeing 737-800 þoturnar sem eru í flotanum í dag.
Airbus A321XLR þoturnar mun Qantas nota í ætlunarflugi til áfangastaða í Suðaustur-Asíu og í Kyrrahafinu
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.