flugfréttir
Verkalýðsfélög styðja samruna Spirit og Frontier
- Eru andvíg því að Spirit Airlines sameinist Jetblue Airways
Spirit Airlines ætlar að hefja aftur viðræður við JetBlue um mögulegan samruna
Verkalýðsfélög starfsmanna hjá flugfélögum í Bandaríkjunum hafa lýst yfir stuðningi við samruna Spirit Airlines og Frontier Airlines og hafa með því lýst yfir áhyggjum sínum ef Spirit Airlines hyggst taka við yfirtökutilboði Jetblue Airways.
Verkalýðsfélagið Transport Workers Union International (TWU), sem fer fyrir yfir 65.000 starfsmönnum
American Airlines, Southwest Airlines, JetBlue, Frontier Airlines, Envoy Airlines, Alaska Airlines og Allegiant,
segir að meðlimir félagsins séu mótfallnir samruna Spirit Airlines við Jetblue Airways.
„Eftir að hafa ígrundað þau áhrif sem samruni Spirit og Frontier mun hafa á starfmenn og viðskiptavini
þá er félagið mjög mótfallið því að Spirit sameinist Jetblue“, segir í yfirlýsingu frá TWU.
TWU bætir við því að JetBlue sé ekki ákjósanlegur vinnuveitandi og sniðgangi félagið að fara
eftir reglugerðum verkalýðsfélaga sem hefur ekki reynst starfsfólki þess vel.
Þá hefur TWU áhyggjur af því að samruni við Jetblue muni eyðileggja fjöldann allan af vellaunuðum
störfum auk þess sem lágfargjaldakostir fyrir farþega eigi eftir að rýrna til muna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.