flugfréttir
Þrjár júmbó-þotur eftir á færibandinu hjá Boeing

Boeing 747-8F fraktþota frá Atlas Air
Senn styttist í að síðasta júmbó-þotan verði afhent frá Boeing og nálgast sá dagur þar sem smíði Boeing 747 heyrir sögunni til.
Boeing afhenti á dögunum enn aðra júmbó-fraktþotuna til Atlas Air sem er af gerðinni
Boeing 747-8F og á Boeing núna aðeins eftir að afhenda þrjár slíkar þotur til viðbótar
til vöruflutningarisans.
Atlas Air Worldwide Holdings lýsti því yfir í gær að fyrirtækið hefði fengið nýja 747-8F
þotu afhenta nýlega og staðfestir Boeing að það séu þrjár eftir á færibandinu sem allar
verða afhentar til Atlas Air á þessu ári.
Eftir að búið verður að afhenda þrjár seinustu verður framleiðslusalurinn tómur en smíði
júmbó-þoturnnar stóð yfir í meira en hálfa öld og náði að lifa lengur en smíði risaþotunnar
Airbus A380 sem stóð yfir í aðeins 17 ár.
Fyrsta júmbó-þotan hóf sig á loft fyrir meira en 53 árum síðan eða þann 9. febrúar árið 1969
og hefur júmbó-þotan náð einstökum líftíma sem fraktþota víðsvegar um heim.
Nýjasta júmbó-þotan sem Atlas Air fékk afhenta mun fljúga á vegum Cainiao sem
mun fljúga vörum á milli heimsálfa fyrir hönd netverslunarinnar Alibaba.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.