flugfréttir
Herða flugöryggi í Nepal í kjölfar flugslyss í lok maí

Twin Otter flugvél frá nepalska flugfélaginu Tara Air
Flugmálayfirvöld í Nepal hafa ákveðið að herða flugöryggi og boðað til aðgerða er kemur að flugstarfsemi í vafasömu veðri og takmörkuðu skyggni í kjölfar flugslyss sem átti sér stað þann 29. maí síðastliðinn.
Um er að ræða flugslys er flugvél af gerðinni Twin Otter frá nepalska flugfélaginu Tara Air
fórst skömmu eftir flugtak frá flugvellinum í Pokhara með 19 farþega og þriggja manna áhöfn
um borð en flugvélin brotlenti í fjalllendi á leið sinni til Jomsom-flugvallarins.
Nepölsk flugmálayfirvöld gáfu þann 31. maí út yfirlýsingu þar sem fram kemur að flugfélög
og flugrekstaraðilar verði að hætta við flug þegar kemur að vafasömu veðri.
Í yfirlýsingu segir að þegar kemur að því að leggja inn flugáætlun fyrir brottför þá verði flugrekstaraðili
að tilgreina veður á áfangastað og á fyrirhugaðri flugleið og verði flugumferðarstjórar og
flugþjónustuaðilar að samþykkja veðurupplýsingar áður en leyfi er gefið fyrir brottför.
Þá er verið að skoða möguleikann á því að taka upp skyldu um að tveir flugmenn
sé um borð í flugvélartegund sem hingað til hefur flogið undir reglugerð sem kveður á um að
einn flugmaður nægi fyrir slíka tegund.
Sérstök fimm manna nefnd hefur verið falið það verkefni að leggja mat á skyldu um
tvo flugmenn um borð og er áætlað að nefndin muni skila frá sér greinargerð á næstu dögum.
Frumrannsókn á flugslysinu þann 29. maí bendir til þess orsök flugslyssins megi að mestu
rekja til veðurs en slysið var það mannskæðasta á þessari flugleið en árið 2016
fórst önnur Twin Otter flugvél frá Tara Air á leið frá Pokhara til Jansom með þeim afleiðingum
að 20 farþegar létust og þriggja manna áhöfn.
Þá átti sér stað enn annað slysið hjá Tara Air árið 2010 er Twin Otter flugvél brotlenti í fjallshlíð
á leið sinni frá Lamidanda til Kathmandu og létust þá 19 farþegar og þriggja manna áhöfn.


4. júlí 2022
|
Anthony Stefán Martinsson útskrifaðist með glæsibrag á dögunum úr bóklegu atvinnuflugnámi hjá Flugakademíu Íslands og hlaut hann verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur en Anthony var með 9,48 í með

26. júlí 2022
|
Lufthansa hefur aflýst yfir 1.000 flugferðum á morgun vegna yfirvofandi verkfalls meðal flugvallarstarfsmanna sem eru meðlimir í verkalýðsfélaginu Verdi.

21. júlí 2022
|
Lettneska flugfélagið Air Baltic er byrjað að taka úr umferð De Havilland Dash 8-400 flugvélarnar og hafa þær fyrstu yfirgefið flugflotann.

17. ágúst 2022
|
Flugþjálfunarfyrirtækið CAE og ástralska flugfélagið Qantas hafa undirritað samning um nýtt þjálfunarsetur sem mun rísa í Sydney í Ástralíu.

16. ágúst 2022
|
Breska flugfélagasamteypan IAG (Internatioan Airlines Group), móðurfélag British Airways og Iberia, hefur keypt 20 prósenta hlut í flugfélaginu Air Europa en um er að ræða lán í móðurfélaginu sem bre

15. ágúst 2022
|
Alþjóðasamtök flugfélaganna (IATA) óska nú eftir því að starfslokaaldur atvinnuflugmanna verði hækkaður í von um að það muni auðvelda flugfélögum að hafa næga flugmenn á sama tíma og spár gera ráð f

15. ágúst 2022
|
Flugfélagið SAS (Scandinavian Airlines) hefur tryggt sér brúarlán upp á 96 milljarða frá fyrirtækinu Apollo Global Management til þess að endurfjármagna rekstur félagsins.

12. ágúst 2022
|
Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, segir að tími hræódýrra flugfargjalda sé liðinn og muni það núna heyra sögunni til að hægt sé að bóka flug fyrir aðeins 10 evrur aðra leiðina.

11. ágúst 2022
|
Rússneska flugfélagið Volga-Dnepr mun á næstunni segja upp yfir 200 flugmönnum sem starfa hjá félaginu og þar á meðal þeim flugmönnum sem starfa hjá dótturfélögunum AirBridgeCargo og Atran.

10. ágúst 2022
|
Malaysia Airlines er sagt ætla að festa kaup á tuttugu A330neo breiðþotum sem ætlað er að leysa af hólmi eldri þotur í flota flugfélagsins.

9. ágúst 2022
|
Sagt er að nokkur rússnesk flugfélög, og þar á meðal ríkisflugfélagið Aeroflot, séu farin að rífa niður farþegaþotur í sínum flugflota til þess að nálgast varahluti og halda öðrum flugvélum í flotan