flugfréttir

Lestarfyrirtækið Deutsche Bahn verður meðlimur í Star Alliance

5. júlí 2022

|

Frétt skrifuð kl. 12:14

Þýska lestarfyrirtækið er fyrsta fyrirtækið sem er ekki í flugiðnaðinum sem gengur í flugfélagabandalagið Star Alliance

Þýska lestarfyrirtækið Deutsche Bahn mun gangast í flugfélagabandalagið Start Alliance í næsta mánuði en fyrirtækið verður fyrsti meðlimurinn til þess sem er ekki í flugrekstri og rekur ekki flugfélag.

Deutsche Bahn mun verða einskonar fluglest þar sem farþegar á einstökum flugleiðum innan Evrópu, sem bóka flug með flugfélögum, fá úthlutað flugmiða þar sem fararskjótinn verður lest.

Jeffrey Goh, framkvæmdarstjóri Star Alliance, segir að samstarfið eigi eftir að opna dyr að möguleikum sem ná út fyrir flugiðnaðinn og gæti svo farið að aðrir samgöngumátar eigi eftir að verða hluti að flugfélagabandalaginu.

„Nýja módelið sem felur í sér blandaðar samgöngur á eftir að skapa tækifæri til samstarfs við fleiri tegundir af samgöngum innan bandalagsins“, segir Jeffrey.

Lufthansa, sem er meðlimur í Star Alliance, hefur nú þegar hafið fluglestarsamstarf sem nefnist Lufthansa Express Rail sem býður upp á svipaða möguleika og verður það samstarf notað sem fyrirmynd af Star Alliance og Deutsche Bahn.

Tilgangur samstarfsins er meðal annars til þess að draga úr kolefnaútblæstri í samgöngum og einnig til þess að bjóða farþegum að geta ferðast á einum miða til áfangastaða innan bandalagsins hvort sem um sé að ræða með flugi eða lestum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga