flugfréttir
Boeing varar við því að hætt verði við smíði 737 MAX 10
Boeing 737 MAX 10 tilraunarþota í Renton
Yfirmenn Boeing hafa varað við því að mögulega gæti farið svo að flugvélaframleiðandinn hætti við framleiðslu á Boeing 737 MAX 10, sem er lengsta útgáfa af MAX-þotunni, og er ástæðan sögð vera vegna atriða er varðar útgáfu á flughæfnisvottun frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA).
Boeing hefur frest til lok þessa árs til þess að fá í hendur flughæfisvottun fyrir þotuna
og á framleiðandinn í viðræðum við bandaríska þingið og flugmálayfirvöld vestanhafs.
„Ég á ekki von á því að við hættum við þotuna og verkefnið í heild sinni. Ég vill ekki
að neinn haldi því fram en það er samt áhætta til staðar að svo geti farið“, segir Dave Calhoun,
framkvæmdarstjóri Boeing.
Talsmaður Boeing segir að framleiðandinn sé staðráðinn í að uppfylla kröfur flugmálayfirvalda
en FAA varaði Boeing við því í byrjun þessa árs að mögulega gæti farið svo að
ekki verði hægt að gefa út flughæfnisvottun fyrir 737 MAX 10 á þessu ári.
Fram kemur að vandamálið varðar viðvörunarkerfi sem FAA krefst að Boeing komi fyrir
í stjórnklefanum á Boeing 737 MAX. Ef ekki verður hægt að verða við þeirri kröfu
eru líkur á að FAA fari fram á endurhönnun á stjórnklefanum í þotunum sem verður til
þess að flugmenn, sem fljúga 737 MAX 10, þurfi að gangast undir öðruvísi þjálfun sem verður
frábrugðin þeirri sem notuð er fyrir minni tegundirnar, 737 MAX 9 og MAX 8.
Boeing hefur í dag fengið pantanir í yfir 600 eintök af Boeing 737 MAX 10 frá 18 viðskiðavinum
en meðal þeirra flugfélaga sem hafa pantað þotuna eru British Airways, United Airlines, Alaska Airlines,
Qatar Airways auk fjöldi annarra flugfélaga.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.