flugfréttir
Flugbúðir fyrir 13-16 ára haldnar í ágúst
Keilir bauð upp á Flugbúðir fyrst sumarið 2013 og árlega eftir það og nutu þær mikilla vinsælda og færri komust að en vildu
Flugakademía Íslands mun bjóða upp á Flugbúðir fyrir ungt fólk á aldrinum 13 til 16 ára dagana 9. - 11. ágúst nk. en flugbúðirnar eru tilvalinn vettvangur fyrir þau sem hafa brennandi áhuga á flugi og fugtengdum málum sem og þau sem hyggja á flugnám í framtíðinni til þess að spreyta sig og fá betri innsýn inn í flugheiminn.
Keilir bauð upp á Flugbúðir fyrst sumarið 2013 og árlega eftir það og nutu þær mikilla vinsælda og færri komust að en vildu. Flugbúðirnar voru svo endurvaktar árið 2021 og verður þetta skemmtilega námskeið haldið aftur í ár, enda margir sem hafa áhuga á flugi og sjá fyrir sér að leggja það fyrir sér að atvinnu. Umfjöllun um fyrstu flugbúðirnar í Íslandi í dag má finna hér.
Í Flugbúðunum verður farið yfir allt það áhugaverðasta og skemmtilegasta sem kennt er í flugtengdum fögum þar sem vettvangsferðir skipa stóran sess, enda mikil upplifun að fá að fara inn á flugverndarsvæðið og sjá þá fjölbreyttu flóru af flugtengdum vinnustöðum sem yfirleitt eru lokaðir almenningi.
Allir þátttakendur fá tækifæri til að prófa að fljúga í fullkomnum flughermi Flugakademíunnar og afslátt í kynnisflug í einni af kennsluvélum skólans. Flugbúðir Flugakademíunnar eru stútfullar af spennandi efni þar sem skiptist á kennsla og fyrirlestrar í bland við vettvangsferðir og verklegar æfingar.
Gestafyrirlesarar úr flugtengdum fögum verða á námskeiðinu, svo sem flugmaður sem segir frá daglegu lífi sínu í millilandaflugi, og eru leiðbeinendur námskeiðssins flugmenn, nemar og kennarar við Flugakademíu Íslands.
Námskeiðið er í þrjá daga, frá þriðjudeginum 9. ágúst til og með fimmtudeginum 11. ágúst frá kl. 9:00 - 15:00 og er námskeiðsgjald 38.900 kr. Innifalið í námsskeiðsgjaldi er hádegismatur, námsgögn, vettvangsferðir og kynningartími í flughermi skólans.
Takmarkað pláss er á námskeiðinu og hvetjum við því áhugasama til að skrá sig sem fyrst. Frekari upplýsingar eru veittar í gegnum netfangið flugbudir@keilir.net
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.