flugfréttir

Lágmarksnýting á plássum verði hækkuð úr 50 upp í 80 prósent

13. júlí 2022

|

Frétt skrifuð kl. 13:26

Frá sumrinu 2020 hafa flugfélög einungis þurft að nýta pláss sín á evrópskum flugvöllum upp á 50 prósentum

Evrópusambandið hefur komið fram með tillögu um að taka aftur í notkun 80/20 reglugerðina fyrir þjónustupláss á evrópskum flugvöllum sem var breytt vegna heimsfaraldursins.

Til þess að flugfélög geti viðhaldið rétti sínum á afnotum á plássum á flugvöllum þarf að vera 80% nýting á plássunum miðað við flugáætlun þeirra en þar sem að flugumferð dróst gríðarlega saman vegna kórónaveirufaraldursins þá var sú regla milduð niður í helmingsnotkun eða 50/50 sumarið 2020 og því næst var henni breytt í 64/36 í vor og er hún í gildi núna í sumar.

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandins íhugar nú að breyta reglunni í haust með því að taka upp það fyrirkomulag sem var áður árið 2019 en þó með undantekningum ef eftirspurning dregst aftur saman vegna ýmissa áhrifa sem gætu spilað inn í.

Lagt er til að breytingin verði gerð í október og verða flugfélög þá að nota plássin sín á flugvöllum sem nemur að minnsta kosti 80 prósentum en fram kemur að flugfélög geti þó nýtt sér undantekningu ef um er að ræða áhrif af heimsfaraldri, náttúruhamfarir eða áhrif af pólitískum deilum sem veldur röskun á flugsamgöngur.

Fram kemur að reglugerðin verði afnumin ef farþegafjöldinn fer undir 80% af því sem var árið 2019 í fjórar vikur samfelt.

Ef reglugerðin breytist í haust er verið að ræða um að hún taki í gildi þann 30. október næstkomandi og gildi fram til 26. mars árið 2024 en þá er talið að eftirspurn eftir farþegaflugi verð búin að ná sér að fullu á flestum svæðum.

Samkvæmt nýjustu spám frá evrópsku flugumferðarstjórninni Eurocontrol þá er talið að flugumferðin í Evrópu verði komin í 90% í október af því sem var fyrir heimsfaraldurinn og 92 prósent fyrir lok ársins miðað við bjartsýnustu spár.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga