flugfréttir
Flugu 1.000 ferðatöskum frá Heathrow í stað þess að fljúga tómri vél til baka
- Ákváðu að koma ferðatöskum til Bandaríkjanna eftir að flugi var aflýst

Eftir að áætlunarflug Delta var aflýst á Heathrow í vikunni ákvað flugfélagið að fljúga um 1.000 ferðatöskum til Bandaríkjanna
Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines brá á það ráð á dögunum að fljúga tómri Aibrus A330 breiðþotu til Bandaríkjanna frá London í þeim tilgangi að flytja ferðatöskur sem hafa hrannast upp á Heathrow-flugvellinum og koma þeim í réttar hendur vestanhafs.
Ein mestu öngþveiti í sögu Heathrow-flugvallar hafa dunið yfir flugvöllinn undanfarna daga sem hefur ekki ráðið við
það magn af ferðatöskum sem hafa hrúgast upp vegna bilunar sem kom upp í farangursflokkunarkerfi flugvallarins
auk þess sem skortur á starfsfólki spilar einnig inn í.
Delta Air Lines þurfti sl. mánudag að aflýsta áætlunarflugi frá London Heathrow til Detroit þar sem takmörk
hafa verið sett á brottfarir frá Heathrow en í stað þess að láta Airbus A330 þotuna dúsa á flugvellinum
var ákveðið að fylla hana af þeim ferðatöskum sem tilheyra
bandarískum farþegum.
Um 1.000 ferðatöskum var komið fyrir í þotuna sem hóf sig á loft og flaug vestur yfir haf með enga farþega
en þess í stað fullt af farangri svo hægt væri að koma þeim til eigenda sinna.

Mikið magn af ferðatöskum hefur hrannast upp á Heathrow-flugvellinum eftir að bilun kom upp í farangursflokkunarkerfi á sama tíma og skortur er á starfsfólki
Enginn veit með vissu hversu margar ferðatöskur eru í „farangursfjallinu“ á Heathrow-flugvelli en talið er að þær
skipti nokkrum tugum þúsunda.
Heathrow hefur sett takmarkanir á hversu margir farþegar fara um flugvöllinn og eru þær takmarkanir í gildi
fram í miðjan september og hefur flugvöllurinn beðið nokkur flugfélög um að stöðva sölu á farmiðum á meðan
flugvöllurinn er að reyna ná utan um vandamálið.
Willie Walsh, yfirmaður alþjóðasamtaka flugfélaganna (IATA), segir að Heathrow-flugvöllur hefði átt að grípa
mun fyrr í taumana um leið og það var ljóst að farþegafjöldinn var að taka við sér eftir heimsfaraldurinn.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.