flugfréttir

Flugu 1.000 ferðatöskum frá Heathrow í stað þess að fljúga tómri vél til baka

- Ákváðu að koma ferðatöskum til Bandaríkjanna eftir að flugi var aflýst

14. júlí 2022

|

Frétt skrifuð kl. 15:01

Eftir að áætlunarflug Delta var aflýst á Heathrow í vikunni ákvað flugfélagið að fljúga um 1.000 ferðatöskum til Bandaríkjanna

Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines brá á það ráð á dögunum að fljúga tómri Aibrus A330 breiðþotu til Bandaríkjanna frá London í þeim tilgangi að flytja ferðatöskur sem hafa hrannast upp á Heathrow-flugvellinum og koma þeim í réttar hendur vestanhafs.

Ein mestu öngþveiti í sögu Heathrow-flugvallar hafa dunið yfir flugvöllinn undanfarna daga sem hefur ekki ráðið við það magn af ferðatöskum sem hafa hrúgast upp vegna bilunar sem kom upp í farangursflokkunarkerfi flugvallarins auk þess sem skortur á starfsfólki spilar einnig inn í.

Delta Air Lines þurfti sl. mánudag að aflýsta áætlunarflugi frá London Heathrow til Detroit þar sem takmörk hafa verið sett á brottfarir frá Heathrow en í stað þess að láta Airbus A330 þotuna dúsa á flugvellinum var ákveðið að fylla hana af þeim ferðatöskum sem tilheyra bandarískum farþegum.

Um 1.000 ferðatöskum var komið fyrir í þotuna sem hóf sig á loft og flaug vestur yfir haf með enga farþega en þess í stað fullt af farangri svo hægt væri að koma þeim til eigenda sinna.

Mikið magn af ferðatöskum hefur hrannast upp á Heathrow-flugvellinum eftir að bilun kom upp í farangursflokkunarkerfi á sama tíma og skortur er á starfsfólki

Enginn veit með vissu hversu margar ferðatöskur eru í „farangursfjallinu“ á Heathrow-flugvelli en talið er að þær skipti nokkrum tugum þúsunda.

Heathrow hefur sett takmarkanir á hversu margir farþegar fara um flugvöllinn og eru þær takmarkanir í gildi fram í miðjan september og hefur flugvöllurinn beðið nokkur flugfélög um að stöðva sölu á farmiðum á meðan flugvöllurinn er að reyna ná utan um vandamálið.

Willie Walsh, yfirmaður alþjóðasamtaka flugfélaganna (IATA), segir að Heathrow-flugvöllur hefði átt að grípa mun fyrr í taumana um leið og það var ljóst að farþegafjöldinn var að taka við sér eftir heimsfaraldurinn.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga