flugfréttir
Telur að bónusgreiðslur til að laða að flugmenn hafi skaðleg áhrif á flugnám
Robin Glover-Faure, formaður L3Harris Technologies
Flugskólinn og flugþjálfunarfyrirtækið L3Harris Technologies vinnur nú að því að færa út kvíarnar til þess að koma til móts við þann skort sem er á flugmönnum og fyrirbyggja enn frekar skort á næstu árum.
Robin Glover-Faure, formaður L3Harris, segir að skortur á flugmönnum hafi þegar
verið byrjaður að gera vart við sig fyrir heimsfaraldurinn en ástandið líti ekki sérlega vel út
núna eftir faraldurinn þar sem 50% samdráttur hefur orðið í flugnámi vegna þess ótta
sem kom upp varðandi framtíðarhorfur í miðjum faraldrinum.
Glover-Faure segir að flugfélög hafi gripið til ýmissa ráða og m.a. boðið háar bónusgreiðslur til þess að laða að fleiri flugmenn en hans mat er að þau flugfélög ættu frekar að verja
þeim fjármunum í flugnám til þess að tryggja öruggt flæði af nýjum flugmönnum á næstu árum.
Þá segir hann að bónusgreiðslur geri ástandið enn verra þar sem það laðar að flugkennara
sem hætta að kenna þar sem þeir þiggja störf í atvinnuflugi sem skapar þá skort
á flugkennurum til þess að kenna nýjum flugmönnum.
Diamond DA42 flughermir
Flugskólinn L3Harris Technologies stefnir á að fjölga útibúum flugskóla á næstunni
til þess að koma til móts við skort á flugmönnum en til að mynda þá mun L3Harris taka í
notkun ný húsakynni og stærri aðstöðu í flugskólanum í Cranfield í Bretlandi síðar í þessum
mánuði.
Stækkunin kemur með fleiri kennslustofum fyrir bóklegt nám og þrjá nýja
Diamond DA42 flugherma með nýjustu tækni þar sem ásýndin verður með mjög raunverulegri
grafík.
Þá mun L3Harris bæta við flugþjálfun í flugskólanum í Sanford í Flórída sem miðast
við kröfur EASA sem býður upp á ódýrari þjálfun í Bandaríkjunum áður en þeir
ljúka þjálfun á tveggja hreyfla flugvélar með blindflugsáritun.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.