flugfréttir

Delta Air Lines pantar 100 Boeing 737 MAX 10 þotur

18. júlí 2022

|

Frétt skrifuð kl. 13:50

Boeing og Delta Air Lines tilkynntu um pöntunina á Farnborough-flugsýningunni sem hófst í dag

Flugsýningin í Farnborough hófst í dag á Englandi og byrjaði fyrsti sýningardagurinn á risapöntun frá Delta Air Lines sem lagði inn pöntun til Boeing í 100 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX.

Allar þoturnar eitt hundrað verða af gerðinni Boeing 737 MAX 10 og þá tryggði flugfélagið sér einnig kauprétt á 30 þotum til viðbótar og hefjast afhendingar árið 2025.

Pöntunin þykir sérstök að því að leyti að Boeing hafði ekki tryggt pláss fyrir Delta Air Lines á pöntunarlista fyrir Boeing 737 MAX en með þessu hefur Boeing selt MAX þoturnar til allra af stærstu flugfélögum Bandaríkjanna og er Delta því komið í hóp með American Airlines, Southwest Airlines, American Airlines og United Airlines.

„Þetta er frábær stund fyrir okkur öll og endurspeglar samband okkar við Boeing og CFM“, segir í yfirlýsingu frá Boeing en allar þoturnar munu koma með LEAP-1A hreyflum frá CFM International.

Delta Air Lines á von á því að fá 737 MAX 10 þoturnar afhentar frá árinu 2025 til ársins 2029 en afhendingar munu standa yfir til ársins 2031 ef flugfélagið breytir kaupréttinum í þrjátíu viðbótarþotur í staðfestar pantanir.

Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX 10 í litum Delta Air Lines







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga