flugfréttir
Skortur á starfsfólki í fluginu mun sennilega vara til 2023
Tim Clark, forstjóri Emirates á Farnborough-flugsýningunni í dag
Tim Clark, forstjóri Emirates telur að sá rekstarvandi, sem mörg flugfélög eru að berjast við þessa daganna, sé eitthvað sem má gera ráð fyrir að verði enn viðloðandi fram á næsta ár.
Þetta kom fram í ávarpi Tim Clark á ráðstefnu á flugsýningunni í Farnborough sem hófst
í dag en Clark segir að aðalvandamálið sé mikill skortur á starfsfólki í flugiðnaðinum
bæði meðal flugfélaganna og á flugvöllum.
„Mín skoðun er sú að við munum ná jafnvægi á ný árið 2023 en á meðan þá er ég hræddur
um að róðurinn verði frekar erfiður fram að því - Við verðum að sætta
okkur við það að mjög mikið af fólki yfirgaf flugiðnaðinn árið 2020 og það er erfitt
að finna fólk aftur í þessi störf“, segir Clark.
Þá telur Clark að mikið af fyrirtækjum voru ekki nægilega vel undirbúin fyrir hvað myndi
taka við eftir heimsfaraldurinn um leið og eftirspurnin kom til baka.
„Ég sagði að þetta myndi koma aftur. Þetta hoppar alltaf aftur til baka. En flestir
voru of smeikir við kostnaðinn af því ef svo myndi ekki gerast“, segir Clark.
Willie Walsh, yfirmaður alþjóðasamtaka flugfélaganna (IATA), tekur í sama streng og
segir að það muni taka einhverja mánuði fyrir fyrirtæki í fluginu að ná tökum
á starfsmannamálum.
Walsh telur að ástandið muni skána því lengur sem líður á árið en tekur fram að
vandamálið sé þó ekki til staðar í öllum heimshlutum og ekki meðal allra flugfélaga.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.