flugfréttir

15 daga verkfall meðal flugmanna SAS á enda

- Samningar nást við flugmenn félagsins

19. júlí 2022

|

Frétt skrifuð kl. 14:50

Verkfall meðal flugmanna hjá SAS hafði staðið yfir í 15 daga

Tveggja vikna verkfall meðal flugmanna hjá Scandinavian Airlines (SAS) er á enda en kjarasamningar náðust í gær á milli flugmanna og stjórnar flugfélagsins og líkur því þar með verkfallsaðgerðum sem stóðu yfir í 15 daga.

Samningurinn nær til allra fjögurra starfsmannafélaganna sem flugmenn eru aðilar í og segir SAS að skilmálar í samningum kveða á um hærra starfshlutfall og meiri sveiganleika í árstíðarbundnum rekstri.

SAS hefur fallist á að endurráða um 450 flugmenn til ársins 2024 og þá kemur fram að einstaka málaferli sem fyrirhuguð voru af starfsmannafélögum á hendur SAS verða felld niður í kjölfar þess að samningar náðust.

„Loksins getum við haldið flugáætlun okkar áfram og komið viðskiptavinum okkar til áfangastaða snuðrulaust“, segir Anko van der Werff, framkvæmdarstjóri SAS, sem biður farþega innilega afsökunar á þeim áhrifum sem verkfallið hafði á ferðaáætlanir þeirra.

SAS segir að þeir samningar sem náðst hafa sé lykillinn í að fylgja eftir rekstaráætluninni „SAS Forward“ sem félagið hefur unnið eftir í kjölfar heimsfaraldursins og muni leiðarkerfi SAS komast í rétt horf á allra næstu dögum.

Enn bíður kjarasamningurinn þó eftir samþykki frá öllum fjórum starfsmannafélögunum og þá þarf gjaldþrotadómstóll Bandaríkjanna einnig að samþykja hann þar sem SAS hafði sótt um gjaldþrotameðferðina Chapter 11 en SAS gerir ráð fyrir að það verði komið í gegn innan nokkurra vikna.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga