flugfréttir

Pantanir í yfir 250 Boeing 737 MAX þotur á 4 dögum

- Flestar pantanirnar frá Qatar Airways og Delta Air Lines

21. júlí 2022

|

Frétt skrifuð kl. 14:10

Qatar Airways lagði í dag inn pöntun í 25 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX 10 með möguleika á jafnmörgum þotum til viðbótar

Boeing hefur tryggt sér pantanir í 267 þotur á þeim fjórum dögum sem liðnir eru af Farnborough flugsýningunni sem hófst sl. mánudag.

Af þessum 267 þotum eru pantanir í 258 Boeing 737 MAX þotur en flestar af þeim þotum tilheyra pöntunum frá tveimur flugfélögum sem eru Delta Air Lines og Qatar Airways.

Qatar Airways tilkynnti í dag að flugfélagið hefði lagt inn pöntun í 25 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX 10 með möguleika á 25 þotum til viðbótar.

Pöntunin kemur í kjölfar yfirlýsingar frá Qatar Airways sem tilkynnti í janúar um samkomulag við Boeing um kaup á Boeing 737 MAX þotunni en á sama tíma hafði Airbus rift samningi sem Qatar Airways hafði gert vegna pöntunar á fimmtíu þotum af gerðinni Airbus A321neo.

Ekki kemur fram hvenær áætlað er að afhenda fyrstu 737 MAX þoturnar til Qatar Airways en Boeing 737 MAX 10 er núna á tilraunastigi og áætlar framleiðandinn að afhendingar hefjist á næsta ári.

Hinsvegar gætu þau áform raskast þar sem ný reglugerð frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) tekur í gildi í desember á þessu ári sem fer fram á að sérstakur viðvörunarbúnaður verði komin í 737 MAX þoturnar sem er eitthvað sem ekki hefur verið gert ráð fyrir ennþá um borð í MAX 10 þotunum.

Meðal annarra viðskiptavina sem hafa lagt inn pöntun í Boeing 737 MAX á Farnborough-flugsýninginni í vikunni eru flugvélaleigurnar Lessor Aviation Capital og 777 Partners en sú fyrrnefnda hefur pantað tólf Boeing 737 MAX 8 þotur á meðan 777 Partners lagði inn pöntun í 66 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX 8.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga