flugfréttir
Panta 41 þotu frá Airbus
Airbus A321 farþegaþota frá Condor
Þýska flugfélagið Condor hefur lagt inn pöntun til Airbus í 41 farþegaþotu úr A320neo fjölskyldunni.
Þetta er önnur pöntun Condor til Airbus á skömmum tíma en flugfélagið þýska á von á að fá
fyrstu Airbus A330neo breiðþotuna af sextán síðar á þessu ári en þær þotur munu leysa af hólmi
Boeing 767-300ER þoturnar.
Tilkynnt var um pöntunina í dag og samanstendur hún af þrettán Airbus A320neo þotum
og 28 þotum af gerðinni Airbus A321neo.
Fyrstu þoturnar verða afhentar vorið 2024 og koma vélarnar í stað eldri flugvéla af gerðinni
Airbus A320, A321 og Boeing 757.
Flugfloti Condor telur í dag 60 þotur af gerðinni Airbus A320, A321, Airbus A330 auk
Boeing 767.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.