flugfréttir

Fresta því að auka afköst upp á 65 A320neo þotur á mánuði

27. júlí 2022

|

Frétt skrifuð kl. 16:44

Airbus segir að áform um að ná að framleiða 75 þotur úr A320neo fjölskyldunni árið 2025 séu óbreytt

Airbus hefur ákveðið að fresta áformum um fyrirhugaða aukna afkastagetu í framleiðslu á Airbus A320neo þotum vegna ótta við þá stöðu hjá birgjum og þeim framleiðendum sem smíða íhluti í þoturnar.

Airbus hafði í huga að vera komið í afköst upp á 65 þotur á mánuði úr A320neo fjölskyldunni sumarið 2023 en nú sér framleiðandinn ekki fram á að ná þeim afköstum fyrr en eftir áramótin árið 2024.

Um er að ræða um það bil 6 mánaða seinkun en Airbus tekur fram að þetta hafi ekki nein áhrif á markmið um að ná framleiðslu upp á 75 þotur á mánuði árið 2025.

Þá hefur Airbus einnig lækkað afhendingarspá sína í ár upp á 720 þotur niður í 700 þotur þegar árið 2022 er á enda.

Á sama tíma segir Airbus að verið sé að skoða möguleikann á að auka framleiðsluhraðann á breiðþotum þar sem eftirspurn eftir þeim er farin að aukast á ný eftir að heimsfaraldurinn er á enda.

Guillaume Faury, framkvæmdarstjóri Airbus, segir að afkoma framleiðandans hafi verið nokkuð stöðug á fyrri helmingi þessa árs en enn sé nokkur óvissa með framhaldið vegna óstöðugleika í efnahagsmálum og óvissu í flugiðnaðinum vegna ýmissa þátta.

Airbus afhenti 297 þotur á fyrri árshelmingi þessa árs en af þeim voru afhentar 230 úr Airbus A320neo fjölskyldunni, 29 breiðþotur af gerðinni A350, þrettán A330 þotur og 25 þotur af gerðinni Airbus A220.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga