flugfréttir

IAG staðfestir pöntun í 37 þotur úr A320neo fjölskyldunni

28. júlí 2021

|

Frétt skrifuð kl. 15:21

Airbus A321neo þota frá British Airways

Flugfélagasamsteypan IAG (International Airlines Group), móðurfélag British Airways og Iberia, hefur lagt inn pöntun til Airbus í 37 þotur úr A320neo fjölskyldunni.

Kaupsamningur vegna pöntunarinnar var undirritaður í dag og er um að ræða kauprétt sem IAG tryggði sér í ágúst árið 2013 þegar fyrirtækið lagði inn pötnun í allt að 220 þotur frá Airbus og er því nú búið að breyta þeim kauprétti í staðfesta pöntun og hefur IAG einnig tryggt sér kauprétt á 50 þotum til viðbótar.

Í yfirlýsingu frá IAG kemur fram að ekki séu enn búið að ákveða hvert hlutfallið verður á milli Airbus A320neo og A321neo en þoturnar verða afhentar á milli áranna 2025 og 2028.

Þess má geta að IAG hafði einnig breytt öðrum kauprétti í maí á þessu ári yfir í staðfesta pöntun og var þá um að ræða tvær Airbus A321neo þotur og sex þotur af gerðinni A320neo og verða þær flugvélar afhentar frá árinu 2024 til 2025.

Þá hafði IAG í maí á þessu ári gert samkomulag við Boeing um kaup á 150 þotum af gerðinni Boeing 737 MAX en 25 af þeim þotum verða af gerðinni Boeing 737 MAX 10 og tuttugu og fimm af gerðinni 737 MAX 8 200.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga