flugfréttir
Emirates byrjar aftur að fljúga til London Stansted
Boeing 777-300ER þota frá Emirates í flugtaki á Stansted-flugvellinum í London
Emirates hefur hafið aftur reglubundið farþegaflug til Stansted-flugvallarins og flýgur félagið því núna til þriggja flugvalla í nágrenni London.
Flugfélagið flýgur því núna níu sinnum á dag til London frá Dubai en Emirates flýgur
sex sinnum á dag til London Heathrow, tvær ferðir á dag til Gatwick-flugvallarins og mun félagið
fljúga daglega til London Stansted.
Til London Stansted mun Emirates nota Boeing 777-300ER þotur en félagið flýgur til alls sjö flugvalla á Bretlandi en hinir áfangastaðirnir fjórir eru Manchester, Birmingham, Glasgow og Newcastle.
Emirates ætlaði upphaflega að hefja flug til Stansted-flugvallarins þann 1. september en ákveðið var að flýta því vegna þeirra takmarkanna sem hafa verið á flugi til og frá Heathrow-flugvallarins í sumar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.