flugfréttir

Rann út af braut í Tælandi

2. ágúst 2022

|

Frétt skrifuð kl. 10:58

Boeing 737 þotan á flugvellinum í Chiang Rai eftir atvikið

Engan sakaði er farþegaþota af gerðinni Boeing 737-800 frá flugfélaginu Nok Air rann út af braut í lendingu í borginni Chiang Rai í norðurhluta Tælands um helgina.

Atvikið átti sér stað síðastliðið laugardagskvöld (30. júlí) og var þotan að koma frá Bangkok þegar hún fór út af braut og staðnæmdist með öll þrjú hjólastellin utan flugbrautar.

Gríðarleg úrkoma var er flugvélin fór út af brautinni auk þrumuveðurs og er talið að þotan hafi farið út af braut vegna bleytu á brautinni.

Um borð voru 164 farþegar og sex manna áhöfn og komust allir frá borði heilir á húfi og voru farþegar fluttir að flugstöðvarbyggingunni.

Ekki hefur verið gefið upp um ástand vélarinnar en flugvélin var afhent ný til Nok Air árið 2014 og er hún á leigu frá fyrirtækinu ALAFCO í Kúvæt.







  fréttir af handahófi

Hefja tímabundið áætlunarflug frá Færeyjum til New York

12. apríl 2023

|

Færeyska flugfélagið Atlantic Airways hefur tilkynnt að til stendur að hefja tímabundið áætlunarflug frá Færeyjum til New York í ágúst.

Hætti við flugtak og rak í veg fyrir þotu í flugtaki vegna hliðarvinds

5. júní 2023

|

Rannsóknarnefnd flugslysa í Frakklandi hefur gefið frá sér skýrslu varðandi alvarlegt flugatvik sem átti sér stað á Charles de Gaulle flugvellinum í París fyrir tveimur og hálfu ári síðan.

Avolon pantar fjörutíu 737 MAX þotur frá Boeing

27. apríl 2023

|

Írska flugvélaleigan Avolon hefur gert samkomulag við Boeing um pöntun á fjörutíu Boeing 737 MAX þotum sem verða afhentar frá árinu 2027 til ársins 2030.

  Nýjustu flugfréttirnar

Flugfloti Wizz Air nálgast 200 þotur

8. júní 2023

|

Senn styttist í að ungverska lágfargjaldafélagið Wizz Air taki við sinni tvö hundruðustu flugvél en við lok seinasta fjármálaárs, þann 31. mars sl. stóð flugflotinn í 179 flugvélum og samanstendur a

Þegar farið að bera á seinkunum á flugvöllum í Evrópu

7. júní 2023

|

Þegar er farið að örla á seinkunum á samgöngum í Evrópu og hafa evrópsk yfirvöld varað þá aðila sem eiga hlut að máli að huga sem fyrst að því að grípa í taumana til að draga úr áhrifum sem gæti or

Hætti við flugtak og rak í veg fyrir þotu í flugtaki vegna hliðarvinds

5. júní 2023

|

Rannsóknarnefnd flugslysa í Frakklandi hefur gefið frá sér skýrslu varðandi alvarlegt flugatvik sem átti sér stað á Charles de Gaulle flugvellinum í París fyrir tveimur og hálfu ári síðan.

Fyrri lendingarkeppnin sumarsins fór fram á Tungubökkum

5. júní 2023

|

Fyrri lendingarkeppni sumarsins á vegum Flugklúbbs Mosfellsbæjar fór fram í gær á Tungubökkum.

Icelandair og Turkish Airlines undirrita samstarfssamning

5. júní 2023

|

Icelandair hefur undirritað samstarfssamning við Turkish Airlines um sameiginlega farmiðaútgáfu sem þýðir að farþegar fá aðgang að áfangastöðum flugfélaganna beggja á einni bókun í gegnum bókunarkerf

Nýtt breskt flugfélag festir kaup á Airbus A380 risaþotu

1. júní 2023

|

Nýtt breskt sprotaflugfélag, Global Airlines, hefur fest kaup á sinni fyrstu þotu sem er risaþota af gerðinni Airbus A380 sem mun hefja áætlunarflug frá Gatwick-flugvellinum í London næsta vor.

SAS opnar fyrir bókanir með fyrstu rafmagnsflugvélinni

1. júní 2023

|

SAS (Scandinavian Airlines) hefur opnað fyrir bókanir fyrir fyrstu flugferðir félagsins með rafmagnsflugvél þrátt fyrir að áformað sé að fyrsta rafmagnsflugið verði ekki flogið fyrr en árið 2028.

Air Greenland tekur Boeing 777 og 737 á leigu tímabundið

31. maí 2023

|

Air Greenland hefur neyðst til þess að taka tímabundið á leigu Boeing 777 þotu og Boeing 737 þotu eftir að nýja Airbus A330neo breiðþota félagsins varð fyrir atviki á flugvellinum í Kaupmannahöfn f

Nýtt flugfélag í Sádí-Arabíu sagt ætla að panta 150 MAX-þotur

29. maí 2023

|

Flugfélagið Riyadh Air er sagt í viðræðum við Boeing um stóra pöntun í að minnsta kosti 150 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX.

Efla öryggi varðandi brautarátroðning á tólf flugvöllum

25. maí 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla að verja 100 milljónum dölum í sérstakt verkefni sem miðar af því að efla öryggi er varðar brautarátroðning á 12 flugvöllum vestanhafs.

';

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá