flugfréttir
Tvær milljónir fleiri farþegar í júlí samanborið við júlí fyrir Covid

Ryanair hefur slegið farþegamet í hverjum mánuði frá því í mars í vor
Alls flugu um 16.8 milljónir farþega með Ryanair í júlí sl. sem er fjölgun upp á 2 milljónir fleiri farþegar miðað við júlí árið 2019 áður en heimsfaraldurinn skall á.
Ryanair hefur verið að slá farþegamet í hverjum mánuði frá því í mars í vor og hefur sætanýting einnig verið að aukast jafnt og þétt en til að mynda var sætanýtingin í júlí 96 prósent.
Ryanair stefnir á að flytja 165 milljónir farþega á þessu fjármálaári sem endar í mars 2023
en til samanburðar þá flugu 149 milljónir með Ryanair árið fyrir heimsfaraldur.
Ryanair er ekki eina evrópska lágfargjaldafélagið sem hefur verið að slá farþegamet í júlí
en í síðasta mánuði flugu 4.8 milljónir farþega með Wizz Air sem er 23% aukning frá því í
júlí 2019 þegar 3.9 milljónir flugu með félaginu.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.